þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Já, ég óttaðist þetta og ég veit ekki hvort hv. þingmaður hefur einhverjar tillögur í þessum efnum, hvernig koma megi þessari umræðu kannski upp á yfirborðið. Ég geri nú ráð fyrir að hv. þingmaður sé sammála mér í því að það sé mikilvægt að almenningur fái einhverja heildarmynd af þessu fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna, fyrir hana en ekki eftir hana. Hér er oft umræðan svolítið þannig að þetta eigi að skýrast allt saman eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna, fari eftir því hvernig fólk greiðir atkvæði. En þetta hlýtur að vera mikilvægt í því samhengi og sérstaklega í ljósi þess að sjálfur Draghi hefur nefnt það og kanslari Þýskalands í jafnvel víðtækara samhengi og framkvæmdastjóri ESB, ekki bara varðandi ný aðildarríki tímabundið eins og er verið að ræða þessa dagana, heldur hafa þau núna um misserisskeið verið að nefna það að Evrópusambandið sjálft þurfi að breytast, það þurfi að breyta eðli þess og formi og afnema algerlega þessa kröfu um einsleitni í ákvarðanatöku. (Forseti hringir.) Það hlýtur að hafa áhrif á t.d. sjávarútvegs- og fullveldismál okkar þar sem ég held að allir séu sammála um og jafnvel ríkisstjórnin (Forseti hringir.) að það þurfi að halda til haga fullu og óskoruðu fullveldi okkar í þeim efnum.