157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:37]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta utanrmn. (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er algjörlega augljóst að Evrópusambandið er eitthvað sem er að breytast og hvað varðar þessar skýrslur þá veit ég um fólk, bara úti í samfélaginu, sem hefur lesið þessar skýrslur og hefur sent mér fyrirspurnir um hvort það skilji þetta rétt og hvort þetta sé rétt. Það sem er sláandi í þessum skýrslum sem ég nefndi, bæði Draghi-skýrslunni og Letta-skýrslunni, er að báðir nefna einhvern tiltekinn tímapunkt þar sem fór að halla verulega undan fæti og það var þegar evran kom. Þeir segja það ekki beinum orðum, eðlilega, en þeir fjalla um að eina leiðin til að takast á við þetta sé að auka skilvirkni, auka samhæfni, draga í raun og veru valdið til Brussel í meira mæli en áður hefur verið. Það er það Evrópusamband sem meiri hlutinn og ríkisstjórnin eru að fara að banka upp á hjá og vilja ganga inn í, eitthvert samband sem er að breytast í bandalagsríki Evrópu. Þess vegna spurði ég áðan í seinni ræðu minni: Er það vegferðin sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er á, að breyta Íslandi í 28. bandalagsríki Evrópu? (Forseti hringir.) Ég trúi ekki öðru en að þjóðin ætli að segja nei við slíku.