þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu. Ég ætlaði að spyrja hv. þingmann, af því að hann kemur úr landbúnaðarhéraði miklu: Hver telur hv. þingmaður vera hugsanleg áhrif inngöngu okkar í Evrópusambandið á landbúnað? Sér hann fyrir sér óheftan innflutning á landbúnaðarvörum hingað til lands? Ég tel hann náttúrlega vera stórvarasaman sökum þess að íslenskir búfjárstofnar hafa verið einangraðir um hundruð ára og eru þess vegna mjög útsettir fyrir ýmsum sjúkdómum sem eru nú fjölmargir innan Evrópusambandsins, svo margir að við getum ekki kastað neinni tölu á þessa sjúkdóma sem þar eru og hingað gætu borist ef óheftur innflutningur verður hingað frá Evrópu. Hv. þingmaður talaði einnig um rauð strik, að það væru engin rauð strik. Hvaða rauðu strik ættum við að setja t.d. á sviði landbúnaðar í þessu sambandi? Hvaða rauðu strik gætu það verið að mati hv. þingmanns? Ég hjó líka eftir því að hv. þingmaður nefndi 82 ár. Til hvers var barist í 82 ár? spurði hv. þingmaður. Ég fór nú að hugsa hvað hann meinti með því og áttaði mig á því að það var náttúrlega lýðveldisaldurinn okkar en mér telst þetta vera frekar stærri tölur en það vegna þess að Jón Sigurðsson var kjörinn þingmaður 1844, réttum 100 árum áður en við fengum sjálfstæði, og svo eru einnig 764 ár liðin síðan við síðast afsöluðum okkur sjálfstæðinu.