þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Það er rétt, það er auðveldara að glata frelsinu, glata lýðræðinu, glata sjálfstæðinu heldur en að ná í það aftur. Það er mun auðveldara. Rauð strik í landbúnaði eiga klárlega að vera t.d. að banna innflutning á lifandi dýrum. Það er alveg klárt. Ef við förum að hugsa um sýklalyfjaónæmi þá þyrftum við líka að ganga lengra hvað varðar innflutning á hráu kjöti og hvaðan það kemur. Þetta er vandi nútímans og verður vaxandi í framtíðinni. Evrópusambandið er ósveigjanlegt og ég ætla að nefna dæmi. Kúariða sem kom upp í Bretlandi fór yfir til Evrópu og Evrópusambandið tók sig til og bjó til alls konar reglur, þar á meðal um tiltekið verkfæri sem kostaði tugi milljóna ef ekki 100 milljónir sem þurfti að vera í hverju sláturhúsi og klippa í sundur skrokka til að ná mænunni úr og þeim taugavefjum sem þar eru. Það hefur aldrei greinst kúariða á Íslandi, aldrei, enda höfum við bannað að blanda kjötmjöli í fóður skepna í mjög langan tíma. Það er eitt af því sem hefur gert það að verkum að hreinleiki okkar afurða er meiri en annars staðar. Evrópusambandið krafðist þess að íslensk sláturhús myndu fjárfesta í slíkum búnaði vegna þess að það gæti verið að það myndu slysast hingað sláturgripir. Ég spurði kommissarana tvo sem ég átti fund með 2015 hvernig það gæti gerst að hingað gæti slysast gripur frá Evrópu inn í sláturhús á Íslandi. Það varð fátt um svör en sveigjanleikinn var enginn, núll. Þið skulið kaupa þessa græju ellegar eruð þið að brjóta fjórfrelsið í stofnsáttmála Evrópusambandsins sem verður ekki breytt. Þetta er nú saga um það hversu líklegt er að Evrópusambandið verði sveigjanlegt í landbúnaðarmálum, sjávarútvegsmálum eða öðrum málum er lúta að stofnsamþykktum Evrópusambandsins.