þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir greinargott svar og skemmtilegar sögur af óbilgirni Evrópusambandsins hvað þetta varðar. Þessi saga minnir mig á lög um friðun héra sem einhvern tímann voru við lýði hér á landi og eins og allir vita þá fundust nú engir hérar hér, eða veiðar skógarbjarna sem voru í þjóðveldislögunum, í upphafi þjóðveldis, en svo komust menn fljótlega að því að hér fundust engir skógarbirnir. En hvað vitum við hvað Evrópusambandið tekur upp á að boða okkur varðandi hluti sem eiga alls ekkert við hér eins og við höfum oft rætt einmitt í þessum þingsölum?
Ég vil í seinna andsvari spyrja hv. þingmann: Hvert verður erindi Viðreisnar ef þjóðin skyldi segja nei í lok ágúst? Er erindi Viðreisnar lokið að mati hv. þingmanns ef þjóðin hafnar því að fara í viðræður?