157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:46]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Frú forseti. Það er ástæða til að hrósa hv. þingmanni fyrir góða ræðu sem flutt var af innlifun enda málið stórt. Þau gerast ekki mikið stærri en það mál sem hér er undir. Engu að síður hef ég spurningar og þær tengjast því, má segja, að ég og hv. þingmaður erum þjáningarbræður úr utanríkismálanefnd þar sem við í minni hlutanum höfum vikum og mánuðum saman leitast við að afla upplýsinga, grundvallarupplýsinga um þetta mál, ekki hvað síst til þess að átta okkur á því og fyrir hönd almennings hvað það hefði í för með sér ef í þjóðaratkvæðagreiðslu yrði sagt já. Ef meiri hlutinn í þjóðaratkvæðagreiðslunni segði já, hvað gerist þá? Þessu hefur að mínu mati ekki verið svarað. Nokkrir hæstv. ráðherrar héldu því fram þegar þeir kynntu málið fyrst á blaðamannafundi að það myndi ekkert gerast nema bara að menn héldu áfram að tala saman og segðu hvað væri í boði. Það hefur auðvitað komið á daginn í millitíðinni að það var ekki rétt, það verði leitt fram hvernig aðildarviðræður við Evrópusambandið ganga fyrir sig og út á hvað þær ganga. En okkur vantar enn þá grundvallarupplýsingar um það hvað hæstv. utanríkisráðherra er búinn að vera að bauka. Við höfum þó náð að kría út upplýsingar um fundina sem hæstv. ráðherra hefur átt með embættismönnum í Brussel, sem reyndust fjölmargir, nema tugum, og þar var m.a. og ekki hvað síst rætt um hugsanlegt aðildarferli Íslands að Evrópusambandinu. En við fáum ekki svör um hvað var rætt. Um hvað er búið að semja? Hverju hefur verið lofað? Hver er upphafspunktur Evrópusambandsins?

Getur hv. þingmaður tekið undir það með mér (Forseti hringir.) að það sé óforsvaranlegt fyrir þingið að ljúka umræðu um þetta mál öðruvísi en að fá svör við því hver staðan er eftir alla þessa fundi hæstv. utanríkisráðherra?