þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Hv. þingmaður nefndi það að Erna Bjarnadóttir hefði ekki fengið að koma fyrir nefndina sem vakti mikla furðu okkar í minni hlutanum enda hefur hún mikla þekkingu á þessum málum og hefur skrifað um þau, ekki hvað síst að undanförnu. Sama má segja um fyrrverandi forseta Alþingis, Birgi Ármannsson, sem þó hafði verið vísað í af hálfu m.a. embættismanna úr utanríkisráðuneytinu, en hann fékk ekki að koma heldur. Í ljósi þess hversu erfitt hefur verið að fá upplýsingar í þessu máli og svo bætist það við að gestir sem gætu skýrt það frekar fá ekki að koma, þá hlýtur maður að velta því fyrir sér og ég spyr hv. þingmann: Var einhvern tímann vilji til þess að mati meiri hlutans að afla sem mestra upplýsinga og hafa almenning (Forseti hringir.) sem upplýstastan fyrir þessa þjóðaratkvæðagreiðslu eða var markmiðið alltaf að keyra þetta sem hraðast í gegn með jafnvel sem minnstum upplýsingum?