þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Það er alla vega vegna ákvarðana framkvæmdarvaldsins, vegna ákvarðana ríkisstjórnarinnar um að setja þingið í þennan þrönga tímaramma, að afleiðingin er sú að það er ekki tækifæri til að afla allra þeirra gagna sem ég tel að hefði verið æskilegast til þess að fólk geti tekið ákvörðun. Eftir situr þetta: Þessi vegferð er fullkomin óvissuför. Við vitum hvað við höfum. Við vitum að við höfum full yfirráð yfir auðlindum landsins. Við vitum að við erum sjálf að tala í málum sem varða heimsmálin, okkar eigin röddu, en þurfum ekki að lúta því að Evrópusambandið tali fyrir okkar hönd. Við vitum líka að það sem aðildarsinnarnir hafa fjallað um að þurfi að breyta á Íslandi eru allt hlutir sem við þurfum sjálf að gera ef við færum inn í Evrópusambandið og tækjum upp evru, allt; lækka verðbólgu, lækka skuldir og ná fram þeim hlutum sem hér skipta máli fyrir utan aðra hluti. Þannig að vegferðin er á ábyrgð ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur (Forseti hringir.) og fólk þarf að taka þá ákvörðun 29. ágúst hvort það treystir þeirri vegferð, treystir ríkisstjórninni eða ætlar að halda sig við það sem það þekkir.