157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:56]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég tek nú undir með hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. En ég vil líka vekja athygli á þessum mikla hraða sem er á málinu. Hér hefur bæði framkvæmdarvaldið og meiri hluti hv. utanríkismálanefndar reynt að gera allt til þess að gera hv. þingmönnum erfitt fyrir að fá upplýsingar sem hefði verið eðlilegt að hefðu legið fyrir þegar menn ræddu málið. Ég hef líka vakið athygli á því að minnisblað til ríkisstjórnar, dagsett 19. júní 2012, um viðræður við ESB um viðskipti með landbúnaðarvörur og verndun landfræðilegra merkinga var ekki í gögnunum sem átti að vera. Ég bað um það um leið og mér varð það ljóst og við bíðum enn þá eftir þessum gögnum því að við þurfum að hafa þetta í umræðunni.

En svo vek ég líka athygli á því að hæstv. utanríkisráðherra sagðist ætla að taka þátt í umræðunni og þjóðin hefur fylgst með því að hæstv. utanríkisráðherra er alltaf að færa sig neðar á mælendaskrána þrátt fyrir að hæstv. utanríkisráðherra hafi sagt að hann ætlaði að taka þátt í umræðunni. Ég spyr (Forseti hringir.) forseta: Hvernig stendur á þessu? Er það þannig að ríkisstjórnin vilji tefja þessa umræðu? Er það málið?