157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:57]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég tek undir með þingmönnunum sem komu hér á undan mér í þessum lið hvað varðar þá upplýsingabeiðni sem hefur komið fram hér allnokkrum sinnum í dag. Og eins og hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vék að situr nú hinn eiginlegi forseti Alþingis í forsetastóli. Þess vegna er rétt að ítreka þessa beiðni við frú forseta og jafnvel fá einhver viðbrögð frá forseta um það hvort við getum vænst þess að forseti muni beita sér fyrir því að trúnaðinum verði aflétt af þessum gögnum þar sem þarna heyra undir til þess að allir þingmenn geti glöggvað sig á þeim og í eðlilegu framhaldi þá liggi til grundvallar til upplýstrar ákvörðunar fyrir þjóðina alla.