157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:58]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég vil leyfa mér að taka undir með þeim sem hér hafa lagt orð í belg undir liðnum fundarstjórn forseta, að óskir okkar í stjórnarandstöðunni komu býsna skýrt fram við upphaf þingfundar og enn hef ég ekki orðið var við að brugðist væri við í neinu. Ég sagði nú fyrr í dag að nei er líka svar ef ekki eru áform uppi um að líta til með birtingu þessara gagna. En sporin hræða og við höfum heyrt af því hversu treglega hefur gengið að fá gögn afhent í nefndinni sjálfri. Mér skilst að enn sé eitthvað af þeim gögnum, sem samþykkt hefur verið að kalla eftir og afhenda, ekki komin til nefndarmanna. En það verður þá að vera með smávægilegum fyrirvara og ég horfi þá á formann hv. formann utanríkismálanefndar, Pawel Bartoszek. (PawB: Rétt. )Þetta er rétt, er hér upplýst. Þannig að það er mjög vont (Forseti hringir.) að finna þennan mikla þrýsting á að málið klárist á meðan enn er ekki búið að afhenda gögn sem er beinlínis búið að samþykkja og ákveðið að afhenda og hvað þá rest.