þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég ætla bara að taka undir með þeim sem á undan komu og ítreka að í byrjun þingfundar var óskað eftir því að við fengjum aðgang að gögnum í þessu leyniherbergi. Við höfum ekki fengið nein viðbrögð, hvorki já né nei. Hv. þingmenn utanríkismálanefndar máttu sjá þetta einir og vera bundnir trúnaði. Það væri þá alla vega lágmark að allir hv. þingmenn myndu sjá þetta þannig að þingflokkar gætu rætt málin innan síns þingflokks, allir þingmenn gætu fengið að sjá þetta. Okkur var einnig sagt, frú forseti, að hæstv. utanríkisráðherra myndi taka þátt í umræðunni. Núna hefur okkur verið sagt að við séum í tímapressu og þess vegna þurfti að rífa málið út úr nefnd. Nú er klukkan að verða 11 og hæstv. utanríkisráðherra er ekki enn þá kominn í þingsal, hvað þá aðrir hæstv. ráðherrar.