157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:01]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Það færi vel á því ef einhverjir af þessum næstu hv. þingmönnum stjórnarandstöðunnar sem koma hingað upp í pontu og kvarta undan fundarstjórn forseta hefðu kannski reglur fastanefnda eða þingsköp við hliðina og létu okkur vita hvar, að þeirra mati, forseti þingsins hafi farið út af sporinu við beitingu þeirra. Ég ætla að lesa fyrir hv. þingmenn út úr reglum fastanefnda af því að það er ekki þannig að það sé aldrei hægt að afhenda gögn í trúnaði. Það er hægt og það eru sérstök ákvæði um hvernig það er gert. Síðan segir í 37. gr. reglna um fastanefndir, 4. mgr., um afhendingu trúnaðarupplýsinga:

„Samþykki að minnsta kosti fjórðungur nefndarmanna að taka við upplýsingum í trúnaði, sbr. 1.–3. mgr., skulu þær afhentar þeim nefndarmönnum sem samþykki veita. Séu trúnaðargögn afhent eða rædd á nefndarfundi skulu þeir nefndarmenn sem ekki vilja taka við þeim trúnaðarupplýsingum víkja af fundi.“

Hér var því í einu og öllu farið eftir þessum reglum sem hafa verið settar, bæði í þingsköpum og síðan í reglum um fastanefndir. Þannig að ég er bara að velta fyrir mér með hvaða hætti þingmenn (Forseti hringir.) hv. stjórnarandstöðu vilja að forseti beiti sér. Vilja þeir að þessari niðurstöðu nefndar verði snúið við með einhverjum hætti? Allt hér hefur verið gert eftir (Forseti hringir.) þeim leikreglum sem hafa verið settar. — Ég hef lokið máli mínu.