157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:03]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég tek undir með þeim hv. þingmönnum sem hafa beint því til forseta að þessum gögnum, sem var kallað eftir undir umfjöllun þessa máls í nefndinni og fjalla um samskipti íslenskra ráðamanna úti í Evrópu, í Brussel, og spurt hvað gæti hugsanlega verið í þessum gögnum sem er eitthvert leyndarmál gagnvart þjóð og þingi. Hvað? Ég starfaði lengi í lögreglunni og þurfti oft að afhenda gögn til dómstóla og hingað og þangað og stundum var í þessum gögnum eitthvað sem ekki átti erindi í viðkomandi mál. Þá var það bara dekkt og síðan ljósritað. Þannig að þetta er ekki stórmál. Ég tel að þjóðin og þingið hafi kröfu um það að þessi gögn (Forseti hringir.) verði gerð opinber áður en við förum í þessa atkvæðagreiðslu.(Forseti hringir.) Það á ekki að vera neitt leyndarmál í þessu máli. Þjóðin verður (Forseti hringir.) að geta tekið afstöðu til þess með öll gögn fyrir framan sig.