157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:04]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Mér þykir leitt að við höfum gert hlé á þessari góðu umræðu og tekið þessa snerru í fundarstjórn forseta. Það liggur fyrir og hefur oft komið fram í þessari umræðu, bæði hér í andsvörum en einnig undir þessum lið, fundarstjórn forseta, að nefndin hefði fengið aðgang að öllum þeim gögnum sem þurfa þykir varðandi þetta mál. Öll gögn hafa gerð opinber nema þau sem ekki er hægt að gera opinber eins og önnur mál sem utanríkismálanefnd vinnur með. Ég get ekki túlkað það sem hér kemur fram með öðrum hætti en að fulltrúar minni hlutans í utanríkismálanefnd séu að lýsa því yfir að þeir vilji héðan í frá ekki fá aðgang að gögnum sem þurfa að vera bundin trúnaði. Ég geri ráð fyrir því að forseti taki þessa beiðni minni hlutans alvarlega og ræði þetta við framkvæmdarvaldið, að minni hlutinn fái ekki aðgang að frekari gögnum sem þurfa að vera bundin trúnaði því að þeim þyki erfitt að fara með trúnaðargögn og þyki mikil ábyrgð hvíla á þeim.

En ég vona að við getum haldið áfram með umræðu um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún er góð. Það styttist í að þjóðin fái tækifæri til að taka ákvörðun um næstu skref, ákveðið (Forseti hringir.) hvort við eigum að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Það er þjóðin sem á að ákveða þá umræðu. (Forseti hringir.) Við höfum heyrt því hér lýst af öllum þingflokkum að þeir ætli ekki (Forseti hringir.) að standa í vegi fyrir því að þjóðin fái að greiða atkvæði hér í lok ágúst og ég held (Forseti hringir.) að það sé kominn tími til að þingflokkar fari að sýna það líka í verki. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)

(Forseti (EÁs): Forseti minnir á að ræðutíminn er ein mínúta.)