þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Mig langaði hér að nefna þann möguleika hvort forseti eða einhver á vegum forsætisnefndar settist niður með hv. þm. Pawel Bartoszek, formanni utanríkismálanefndar, og færi stuttlega yfir með hvaða hætti liðurinn fundarstjórn forseta hefur þróast og hefðir myndast í kringum hann. Það er fullkomlega eðlilegt að verið sé að ræða hér á þessum tímapunkti um eðlilega fram settar óskir og kröfur sem voru eðlilega fram settar við upphaf þingfundar og í engu hefur verið brugðist við. Það er ekki þannig að hér þurfi þingmenn að standa og vísa til þess með hvaða hætti athugasemdir eru gerðar við fundarstjórn forseta. Hér standa þingmenn og óska eftir því að fá afstöðu virðulegs forseta til þeirrar óskar sem kom fram við upphaf þingfundar og enn hefur ekki verið brugðist við. Forseti hefur ýmis verkfæri til að hlutast til um það, að ræða m.a. við formann nefndar, hvort sem það er utanríkismálanefnd eða önnur, ræða við þingflokksformenn, (Forseti hringir.) formenn eftir atvikum. Það eru mörg verkfæri sem forseti Alþingis hefur hverju sinni (Forseti hringir.) til að leiða ágreining í jörðu. Ég vildi bara halda þessu til haga í ljósi þess að þetta er (Forseti hringir.) síendurtekin mantra frá hv. þm. Pawel Bartoszek, formanni utanríkismálanefndar.
(Forseti (): Forseti ítrekar enn og aftur að ræðutíminn er ein mínúta undir fundarstjórn forseta.)