157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:08]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég tek undir með bæði hv. þm. Bergþóri Ólasyni og Karli Gauta Hjaltasyni, það er engu við þeirra orð að bæta. En ég vek athygli á því, út af orðum hv. stjórnarliða, að það vantar í gagnapakkann minnisblað til ríkisstjórnar, dagsett 19. júní 2012, um viðræður við ESB um viðskipti með landbúnaðarvörur og verndun landfræðilegra merkinga. Getum við fengið þetta? Það var búið að lofa þessu en það kom ekki með pakkanum. Ef menn vilja klára umræðuna þá hljóta menn að koma með gögn sem þeir eru búnir að lofa og segjast ætla að koma með og við fáum, þing og þjóð.

Svo er hitt. Ég vil spyrja virðulegan forseta: Er þetta eitthvert grín með hæstv. utanríkisráðherra? Hæstv. utanríkisráðherra sagðist ætla að taka þátt í umræðunni. Það sjá það allir að hæstv. utanríkisráðherra færir sig alltaf neðar á mælendaskrá. Vill hæstv. ráðherra ekki klára þessa umræðu? Er það málið? (Forseti hringir.) Við ætlum að eiga orðaskipti við hæstv. ráðherra og hæstv. ráðherra er búin að lofa okkur því að eiga orðaskipti við okkur.