157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:11]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson sagði að allir þingflokkar hefðu sagt að þeir ætluðu ekki að standa í vegi fyrir því að það yrði kosið. Hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson tilgreindi að við hefðum sagt að við ætluðum ekki að koma í veg fyrir að það yrði kosið í ágúst. Það þýðir samt ekki að við ætlum að gefa afslátt af þinglegri meðferð. Hvort við kjósum í lok ágúst eða byrjun september skiptir engu máli. En það skiptir máli að þingleg meðferð sé vönduð. Það er aðalatriðið að við fáum gögn og að þjóðin fái þau gögn sem nauðsynlegt er og eðlilegt getur talist að þjóðin hafi aðgang að í þessu risastóra máli sem við fengum ítrekað að heyra að við treystum ekki þjóðinni fyrir. Við treystum þjóðinni. Nú er komið í ljós hverjir treysta ekki þjóðinni. Það virðist vera meiri hlutinn. Svo var okkur lofað í morgun að við myndum geta átt orðastað við hæstv. ráðherra. Enginn hæstv. ráðherra kemur í þetta mál. Er það kannski ástæðan fyrir því að hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson kom hér upp, að þau ætluðu bara að sleppa eðlilegri þinglegri meðferð?