þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég ítreka óskir mínar um að leynd á þessum gögnum verði aflétt og þau verði opinberuð. Ef eitthvað er í þeim að finna sem ekki á erindi hvað þetta varðar og einhverjir öryggishagsmunir aðrir en þessar viðræður og aðild Íslands að Evrópusambandinu þá er hægt að hylja það í gögnunum. Það koma fleiri misvísandi skilaboð frá hæstv. ríkisstjórn. Það hefur alltaf verið talað um það, frú forseti, að nú færu í hönd tvær atkvæðagreiðslur. Nú ætlum við bara að greiða atkvæði um hvort við ætlum að fara í viðræður og svo ætlum við að fara í atkvæðagreiðslu um það hvort við göngum í Evrópusambandið. Þetta eru orðin tóm, frú forseti. Í frásögn margra hæstv. ráðherra undanfarna daga hefur komið í ljós (Forseti hringir.) að ef þeim þóknast ekki þeir samningar sem nást verður ekki seinna atkvæðagreiðsla — að þeirra mati. (Forseti hringir.) En ef það kemur ný ríkisstjórn, nýir aðilar, (Forseti hringir.) af hverju þá ekki að sleppa þessari atkvæðagreiðslu, (Forseti hringir.) þeir eru ekki bundnir af henni. Þetta er stórvarasamt mál (Forseti hringir.) sem verður að upplýsa, það þarf að lýsa út í öll horn.