157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:14]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Hér hefur verið rætt um gögn sem mönnum finnst vanta. Ég get tekið undir það hjá hv. þingmönnum um þessi gögn í leyniherberginu. En það eru fleiri gögn sem mér finnst líka vanta að varpa ljósi á, a.m.k. draga fram í dagsljósið. Ég hjó eftir því að tekið hefur til starfa einhvers konar heimasíða sem heitir jaedanei.is og þingmenn Viðreisnar og jafnvel ráðherrar eru að flagga, gott ef hún hefur ekki líka verið auglýst sérstaklega sem upplýsingasíða fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna, einhvers konar síða af einhverju gervimenni sem svarar einhverjum spurningum, leggur fram einhver gögn og byggir heimildir sínar á afmörkuðum skjölum. Meðal annars er byggt á einhverju sem hér kallast talpunktar stjórnvalda og er ekki hægt að fá nánari upplýsingar um þó að maður smelli á þessa talpunkta.(Forseti hringir.) Ég hlýt að spyrja, og það hefði verið gott að hafa hæstv. utanríkisráðherra til að svara því: (Forseti hringir.) Til hvaða talpunkta er þetta gervimenni á vegum Viðreisnar eða stjórnvalda að vísa til (Forseti hringir.) á þessari heimasíðu sem á að vera óháð upplýsingasíða fyrir almenning fyrir þessa þjóðaratkvæðagreiðslu?