157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:16]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Hvað varð um hinn eiginlega forseta Alþingis sem ég beindi spurningum til áðan og fleiri, einmitt vegna þess að það hafði verið beðið svara frá hinum eiginlega forseta Alþingis sem hvarf þá skyndilega án þess að svara? Í staðinn fáum við hér upp hv. þingmenn meiri hlutans sem fara einhvers konar glens og fullyrðingar sem standast enga skoðun, t.d. að það sé búið að afhenda öll gögn sem þurfa þykir, sem er ekki rétt. Það er einfaldlega rangt. Eins fullyrðingar um að það sé heimilt, eins og kom fram hjá hv. þm. Pawel Bartoszek hérna áðan, formanni utanríkismálanefndar, að afhenda gögn í trúnaði. Það hefur enginn efast um það að slík heimild geti verið til staðar. En af hverju ættu menn að vilja beita þeirri heimild í þessu máli til að koma í veg fyrir að hv. alþingismenn og almenningur í landinu fái grundvallarupplýsingar um hvað gerist eftir þjóðaratkvæðagreiðslu sem hugsanlega fer fram 29. ágúst næstkomandi?