þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Örstutt vegna orða hv. þm. Pawels Bartoszeks hér áðan undir þessum lið um fundarstjórn forseta, þar sem hv. þingmaður óskaði eftir því, eins og ég skildi það, að við í minni hlutanum myndum svara þeirri spurningu, nú held ég að ég sé að fara með þetta orðalag rétt, hvar hæstv. forseti hefði farið út af sporinu. Því er til að dreifa í svörum við þessari spurningu, frú forseti, að ég er búinn að vera að hugsa þetta síðan hv. þingmaður stóð hér í ræðustólnum og minnist þess ekki að fulltrúar minni hlutans hafi sakað forseta um að hafa farið út af sporinu í fundarstjórn heldur snerist þetta um að fá svör frá forseta um hvort það ætti að verða við þessari gagnabeiðni. Það er svolítið sitthvor hluturinn.