þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Það er alltaf pínulítið sérstakt þegar þær aðstæður teiknast upp að maður er í fundarstjórn forseta eða í andsvörum og kemur svo beint í ræðu. Ég veit ekki hvernig þetta lítur út út á við, en svona er þetta nú stundum. Mig langar að byrja á því, frú forseti, að gera að umtalsefni það sem ég held að liggi ljóst fyrir í þessari snörpu umræðu — í þessari málefnalegu og náttúrlega allt of stuttu umræðu miðað við það tímaplan sem meiri hlutinn teiknar upp fyrir mál sem er af þeirri stærðargráðu að vera ásamt upphafi þessa máls, sem er um 2009, stærsta mál sem hefur komið til kasta Alþingis frá stofnun lýðveldisins. Ég held að ég hafi ekki heyrt hv. þingmenn meiri hlutans nota eitt hugtak og ef það er rangt hjá mér verð ég væntanlega bara leiðréttur, en ég held að enginn af hv. þingmönnum hafi gengið svo langt, í allri þessari umræðu um mögulegar sérlausnir, um tilslakanir á einhverjum tímarömmum, um tímabundnar undanþágur, að fullyrða að þau treysti sér til að senda sendinefnd til Brussel og koma heim með varanlegar undanþágur frá stofnsáttmála Evrópusambandsins. Ég held að ég hafi fylgst með nánast öllum ræðum sem hafa verið fluttar hér og farið í þó nokkuð mörg andsvör til að reyna að draga það fram hvort það sé raunveruleg trú meiri hlutans að slíkt sé hægt en ég held að enginn hafi gengið svo langt. Það segir kannski dálítið mikið um það hvar við erum stödd því að undanþága hefur ekki verið veitt frá breytingunni 2004. Nú langar mig, frú forseti …
(Forseti (EÁs): Forseti biður um hljóð í hliðarsal.)
Þakkir, frú forseti. Eins og ég segi: Frá 2004 hefur slík undanþága ekki verið veitt. Það hefur verið vísað til dæma um að varanlegar undanþágur hafi fengist en það var fyrir tíð núverandi regluverks og uppsetningar á Evrópusambandinu, til að mynda hin svokölluðu dönsku sumarhús eða einhverjir örfáir sporðar sem Malta mátti sækja. Í því samhengi töldu Írar sig reyndar hafa gert slíkt samkomulag en það var með það eins og aðrar undanþágur hjá Evrópusambandinu að það var eingöngu tímabundið og Evrópusambandið gat hvenær sem er breytt sínum áherslum og kosið að framlengja þær ekki. Nú sitja Írar uppi með það. En hvað þýðir það, ef það er ekki valkostur í stöðunni? Eins og fjölmargir hafa bent á, þar á meðal sérfræðingar í Evrópumálum, í Evrópurétti, sagnfræðingar og fleiri — það er hægt að taka nánast allt þetta fræðasamfélagssvið — og menn úr öllum stéttum hafa bent á að ekki séu til dæmi um undanþágu frá stofnsáttmálanum í seinni tíð, í það minnsta ekki eftir 2004. Það myndi þýða fullkomna eftirgjöf framkvæmdarvaldsins og framkvæmdarvaldið myndi færast til Brussel. Við landsbyggðarþingmenn og íbúar á landsbyggðinni þekkjum það mætavel hversu erfitt það getur verið þegar það er langur vegur frá því hvar við búum til þeirra fulltrúa sem starfa fyrir okkar hönd, hversu erfitt getur verið að fá áheyrn og koma áherslum og skoðunum í gegnum þennan sal.
Ég sé að tíminn er að verða búinn og ég er ekki byrjaður á hinni eiginlegu ræðu. Ég mun því óska eftir því, frú forseti, til að komast í aðra mikilvæga þætti, dómsvaldsmálin, fríverslunarsamninga og annað þess háttar, að vera settur aftur á mælendaskrá.