157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

lengd þingfundar.

[15:01]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa um lengd þingfunda er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? (Gripið fram í: Já.) Það er gert. Atkvæðagreiðsla um lengd þingfundar mun fara fram á eftir störfum þingsins.