Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Þann 1. júní næstkomandi verður skerðingardagurinn hjá Tryggingastofnun ríkisins. Þá fá 31.000 einstaklingar það inn um lúguna hjá sér að tekjur þeirra frá Tryggingastofnun, lífeyrislaunin, verði skertar. Miðgildi þeirrar skerðingar er 100.500 kr. Á sama tíma eru auðvitað gleðifréttir: 30.000 einstaklingar, 1.000 færri, fá leiðréttingu og fá borgað — 58.000 kr. er miðgildi þeirra greiðslna. En hvers vegna í ósköpunum erum við með kerfi þar sem fyrir 61.000 einstaklinga, af 85.000 einstaklingum, er ekki hægt að reikna rétt hvað þeir eigi að fá? Það er vegna þess að við gerum þá kröfu á eldri borgara og öryrkja að þeir geti reiknað út vísitölu og vexti en við gerum ekki þá kröfu á neina aðra. Þeir eiga meira að segja að sjá það fram í tímann, frá upphafi árs, og setja inn nákvæmlega hvað þeir mega reikna með að fá miðað við vísitölu, vexti og hækkanir út árið. Það segir sig sjálft að það er ekki hægt. Þetta er of flókið kerfi og það á ekki að vera svona. Sem betur fer erum við að reyna að breyta því.
En ef við tökum fyrir hverjir eru í almannatryggingakerfinu. Í Morgunblaðinu 20. maí síðastliðinn var talað um að bótaþegum hafi fjölgað. Bótaþegum — þetta er ljótt orð. Þetta eru lífeyrislaun og áunnin réttindi. Við verðum að fara að tala um þetta fólk sem er í þessu kerfi af virðingu, eldri borgara og öryrkja okkar, vegna þess að það er alveg með ólíkindum að við skulum enn vera með eldgömul orð sem eru niðurlægjandi. Ég legg til að við hættum að tala um bótaþega og tölum um þá sem eru á lífeyrislaunum. (Forseti hringir.) Berum virðingu fyrir öllum.