Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Hæstv. formaður Viðreisnar er á forsíðu breska dagblaðsins Guardian í dag þar sem hún gefur sterklega til kynna að útbreidd andstaða íslensks almennings við aðild að Evrópusambandinu sé á einhvern hátt tengd vafasömum tilraunum erlendra aðila til að hafa áhrif á íslensk stjórnmál. Hæstv. ráðherra nefnir meint möguleg rússnesk afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslunni, upplýsingaóreiðuherferðir úr sömu átt og svo breska stjórnmálaflokkinn Reform UK. Þótt ekkert bendi til þess að fótur sé fyrir þessum kenningum geta þær auðvitað verið skaðlegar fyrir ímynd Íslands út á við. Það er mikill ábyrgðarhluti að bera þær á borð fyrir alþjóðasamfélagið hálfpartinn eins og þær séu staðfestur veruleiki. Það eina sem við höfum staðfest á þessu stigi sem bendir til einhvers konar dularfullrar íhlutunar vafasamra internetaðila eru miklar herferðir samfélagsmiðlaaðganga sem lýst er í fjölmiðlum sem Viðreisnarbottum. Viðreisnarbottarnir eru Íslendingar sem þó finnast ekki í þjóðskrá en birtast úti um allt í athugasemdum samfélagsmiðla, herja á andstæðinga ESB en mæra aftur á móti Viðreisn og ráðherra þess flokks ákaft. Viðreisn hefur svarið af sér tengsl við þessa botta en skýringar hafa ekki fengist á því hver stendur að baki þessari herferð.
Virðulegur forseti. Ég deili þannig hjartanlega áhyggjum hæstv. ráðherra af hvers kyns erlendri íhlutun í íslensk stjórnmál en af fyrirliggjandi gögnum að dæma er mjög erfitt að sjá að hæstv. ráðherra hlaupi raunverulega í erlenda fjölmiðla með þessar yfirlýsingar núna í góðri trú. Þetta lítur mun frekar út eins og örvæntingarbragð stjórnmálaflokks sem er kominn út í horn, búinn að leggja pólitískt líf sitt að veði og sér ekki annan kost en að tortryggja fyrir fram lýðræðislegan vilja íslensku þjóðarinnar. Ég veit ekki hvort menn séu búnir að hugsa það til enda að fara að grafa svona undan trúnni á íslenskt lýðræði í þeirri von einni að halda andliti í krappri stöðu. Ég vænti vandaðrar umræðu sem byggir á raunverulegum gögnum um þetta mál í þingsal í dag. Ég verð að segja að það vakti undrun mína og líka vonbrigði (Forseti hringir.) að sjá Sjálfstæðisflokkinn draga sig í hlé frá umræðu um þetta mál í gær á sama tíma og flokkurinn tók sérstaka ákvörðun um að gera sér far um að tryggja stöðu Viðreisnar (Forseti hringir.) í meirihlutasamstarfi í stærsta sveitarfélagi landsins um ókomna tíð.