Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Launaþróun hjá ríkinu. Í skýrslu fjármála- og efnahagsráðherra um launaþróun hjá hinu opinbera, á þskj. 1181, kemur fram mikilvægt tilefni til umræðu. Þar er sérstaklega fjallað um samband fjárlagaforsendna, fjárheimilda, og raunverulegra launaútgjalda hjá ríkinu á árunum 2014–2024. Markmið skýrslubeiðninnar var einmitt að varpa ljósi á hvort fjárheimildir sem Alþingi samþykkir skili sér í þau verkefni sem þeim er ætlað eða hvort þær renni að hluta í aukinn launakostnað án skýrrar pólitískrar ákvörðunar.
Virðulegi forseti. Það er athyglisvert að í helstu niðurstöðum skýrslunnar kemur fram að kostnaður vegna kjarasamninga, raunveruleg launaútgjöld ríkisins, launaforsendur fjárlaga og fjárheimildir hafa í stórum dráttum þróast með svipuðum hætti. Þar kemur líka fram að sambandið milli launafjárheimilda og raunlaunakostnaðar sé hvorki einfalt né línulegt og að frávik frá forsendum fjárlaga hafi sums staðar verið talsverð. Þetta skiptir máli. Alþingi verður að geta fylgst með því hvort auknar fjárveitingar fari í bætta þjónustu, ný verkefni og skýr markmið eða hvort þær hverfi inn í almennan rekstur. Skýrslan bendir jafnframt á að gögnin veiti ekki næga innsýn í það hvort fjárveiting til sérstaks verkefnis hafi í raun verið nýtt í það verkefni eða hvort fjárveiting hafi endað í hítinni. Áhugavert er einnig að skoða skýrsluna í ljósi nýlegra tíðinda um að undanfarið hafi þeim fækkað sem starfa í einkageiranum á sama tíma og fjölgað hefur í hópi starfandi hjá opinbera geiranum.
Virðulegi forseti. Ábyrg ríkisfjármál snúast ekki um að gera lítið úr opinberum starfsmönnum. Þau snúast um gagnsæi, forgangsröðun og virðingu fyrir skattgreiðendum. (Forseti hringir.) Þess vegna er þessi skýrsla mikilvæg. Hún er mikilvæg með tilliti til eftirlitshlutverks okkar þingmanna. Þess vegna ber Alþingi og okkur þingmönnum að rýna skýrsluna og fylgja henni eftir með frekari vinnu hér í þinginu.