157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

gögn um Evrópusambandið.

[15:40]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Í gær spurði ég beint hinn eiginlega forseta Alþingis, hafandi spurt staðgengla hæstv. forseta ítrekað: Er engin von til þess að hæstv. forseti sé tilbúinn til að beita sér fyrir því að leynigögnin, grundvallargögn varðandi Evrópusambandið, verði birt? Mér finnst ekki forsvaranlegt að Alþingi afgreiði málið frá sér án þess að við fáum upplýsingar um hvað hæstv. utanríkisráðherra hefur verið að bauka í Brussel að undanförnu og nýjustu vísbendingar, eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson benti á hérna áðan, ýta undir mikilvægi þess. En skyndilega ríkir friður á vorum tímum milli Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og Viðreisnar. En er enginn flokkur þarna í þessu stjórnarsamstarfi, t.d. Samfylkingin, sem telur rétt að alþingismenn og almenningur hafi aðgang að öllum þeim upplýsingum sem þarf til að menn geti greitt atkvæði í væntanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu út frá staðreyndum?