157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

gögn um Evrópusambandið.

[15:41]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Fyrst aðeins um það að ef það er kominn einhver friður milli Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar þá hefur það ekki borist til þingflokks Sjálfstæðismanna og ég vona að við einbeitum okkur að því sem skiptir máli, að koma í veg fyrir það að þessi ríkisstjórn komi Íslandi með góðu eða illu inn í Evrópusambandið. En ég tek undir með hv. þingmanni Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni að ef það hefur verið markmið hjá þessari ríkisstjórn að stunda leyndarhyggju í þessu máli þá fær hæstv. ríkisstjórn 9,5 af 10 mögulegum. Ég vek athygli á því að við erum búin að taka hérna nokkra daga í að ræða þessa tillögu og hæstv. ráðherrar hafa ekki tekið þátt í umræðunni núna. Þeir hafa ekki tekið þátt í þessari umræðu þrátt fyrir að hæstv. utanríkisráðherra hafi sagst í gær ætla að gera það. Og stjórnarliðar hafa hvað eftir annað, nú bara í störfum þingsins, orðið uppvísir að því að hafa fengið rangar upplýsingar (Forseti hringir.) frá hæstv. ríkisstjórn í tengslum við þetta mál.