gögn um Evrópusambandið.
Virðulegi forseti. Í landinu eru tvö stjórnsýslustig, ef þingmenn hafa gleymt því. Þau eru nokkuð óháð hvort öðru og taka sínar ákvarðanir hvort á sínu sviði þótt þau þurfi að hafa samstarf. Að blanda pólitík sveitarstjórnarstigsins inn í þennan þingsal er sérstakt og ég held að við ættum ekki að gera það.
Ég ætla hins vegar að taka undir orð kollega minna sem voru að fjalla um það áðan að við erum að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu eftir rúma þrjá mánuði með upplýsingar sem við höfum ekki fengið nægar frá meiri hlutanum, frá framkvæmdarvaldinu. Þingið á að skaffa upplýsingarnar til fólksins í landinu. Það er fólkið í landinu sem á að taka ákvörðunina. Það að bjóða okkur upp á einhverjar leyniupplýsingar sem við megum hvorki birta, tala um né vitna í hjálpar ekki fólkinu í landinu nokkurn skapaðan hlut. (Forseti hringir.) En það er á ábyrgð ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að fara í þessa vegferð.