þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Aðild að Evrópusambandinu hefur ekki einu sinni fullan stuðning hér í þinginu eins og það er skipað í dag. Það er ekki einu sinni meiri hluti fyrir aðild að Evrópusambandinu innan þings ef marka má það sem þingflokkarnir og þessir stjórnmálaflokkar hafa verið að tjá sig um síðustu misseri. En samt erum við í þessari vegferð. Við erum að fara að greiða atkvæði eftir þrjá mánuði um stærsta mál á vettvangi íslenskra stjórnmála síðustu áratuga. Áttum okkur einnig á því, frú forseti, að glögglega hefur komið í ljós síðustu daga að það er alls ekki ljóst hvað gerist ef þjóðin gefur jáyrði sitt í atkvæðagreiðslunni í ágúst. [Kliður í þingsal.] Það er alls ekki ljóst eftir að nokkrir hæstv. ráðherrar í ríkisstjórninni hafa sagt að ef þeim líst ekki á niðurstöðu samningaviðræðnanna munu þau ekki bera niðurstöðurnar undir þjóðina. Þau munu sleppa því. Hvað þýðir þetta, frú forseti? Í raun og veru þýðir þetta að það er engin vissa fyrir því að fram fari síðari atkvæðagreiðsla eins og lofað hefur verið, alls engin vissa fyrir því. En hvað gerist ef nýir eða aðrir ráðamenn verða á þeim tíma við völd hér í landinu? Hvað gerist þá? Þeir gætu allt eins litið svo á að ekkert loforð hafi verið gefið. Ef þeim hugnaðist samningurinn gætu þessir ráðamenn íslensku þjóðarinnar sleppt síðari atkvæðagreiðslunni og gengið í sambandið. Svo einfalt er það. Hvað ef sú yrði raunin? Menn segðu að ekkert loforð hefði verið gefið um síðari atkvæðagreiðslu, þjóðin hafi viljað í þessa vegferð, fyrir lægi afskaplega góður samningur og öllum hafi verið ljóst hvað það væri að ganga til samninga við bandalagið og þeir myndu einfaldlega ganga inn í það.
Það er ekkert að marka loforð þessarar ríkisstjórnar. Það er ekkert að marka þau. Málið hefur, frú forseti, einkennst allt frá því að það kom fyrst upp af blekkingum hæstv. ríkisstjórnar, af blekkingum, ekki bara fyrir kosningar þar sem því var neitað að aðild að Evrópusambandinu væri yfirleitt á dagskrá og að alls ekki ætti að fara í þessa vegferð nema almenn samstaða væri hér á landi um að ganga inn í Evrópusambandið, eins og hæstv. forsætisráðherra orðaði það fyrir kosningar. Og, með leyfi frú forseta, ætla ég að vitna í orð hæstv. forsætisráðherra fyrir síðustu kosningar.
„Ég veit bara að það er rosalega mikil vegferð að fara í það ferli og það er líka vegferð sem þarf að vera mikil samstaða um hjá þjóðinni. Eins og dæmin hafa sýnt, þú gengur ekki svo auðveldlega út úr Evrópusambandinu. […] Ég er mjög meðvituð um það að það að ganga í Evrópusambandið er verkefni sem þorri þjóðarinnar verður að standa á bak við. […] Þetta þarf líka að koma frá grasrót sem er ekki bara í pólitísku samhengi …“
Einmitt það. Fyrir það fyrsta er hæstv. ríkisstjórn fyrirmunað að bera upp eðlilega spurningu fyrir þjóðina og var gerð afturreka með þá spurningu af landskjörstjórn og Feneyjanefndinni eins og kunnugt er. Hver var tilgangurinn með því orðalagi, frú forseti? Hver var tilgangurinn með upphaflegu orðalagi spurningarinnar, sem stendur reyndar enn og ekki er búið að breyta? Fyrst og fremst til að blekkja og afvegaleiða þjóðina, fyrst og fremst. Í öðru lagi hefur hæstv. forsætisráðherra verið ófáanlegur til að gera grein fyrir samningsmarkmiðum okkar í komandi viðræðum. Hvers vegna skyldi það vera? Er það til þess að geta gengið til viðræðnanna eins og sá sem allt getur með fiskveiðiauðlindina, landbúnaðinn og orkuauðlindirnar í ferðatöskunni og hitt kommissarana í Brussel? Næsta blekkingin, frú forseti, er um eðli viðræðna af þessu tagi. Viðræður af þessu tagi snúast um aðlögun og að viðræðuríkið, Ísland í þessu tilviki, svari því hversu hratt það getur lagað sig að regluverki Evrópusambandsins. En þau gefa það til kynna að þetta sé eins og að velja af matseðli. Það er auðvitað ekki þannig og það má öllum ljóst vera. Fjórða blekkingin, frú forseti, er sú að það séu möguleikar á varanlegum undanþágum frá grundvallarreglum Evrópusambandsins eins og sjávarútvegs- og landbúnaðarstefnunni. Dæmi um slíkt fyrirfinnst ekki og alls ekki frá tíð Evrópusambandsins eftir að það var steypt í það mót sem það nú er. Þannig er því neitað að viðurkenna og horfast í augu við þá staðreynd að ekkert land hefur fengið undanþágur frá grundvallarreglum Evrópusambandsins hvað varðar landbúnaðar- eða fiskveiðistefnu sambandsins. Þar eru í húfi yfirráð okkar yfir auðlindum hafsins sem við börðumst oftsinnis fyrir á seinni hluta síðustu aldar. Hetjurnar okkar, skipherrarnir og sjómennirnir á skipum Landhelgisgæslunnar sem lögðu sig í lífshættu fyrir þjóðina, hljóta að spyrja: Til hvers var barist?
Nei, frú forseti, við gerum kröfu um full og óskoruð yfirráð yfir auðlindum lands og sjávar.
Frú forseti. Hæstv. forsætisráðherra gat ekki svarað því í viðtali á Sprengisandi síðastliðinn sunnudagsmorgun hvort ekki væri heppilegast að hefja viðræðurnar með því að fá það fram hvort slík full og óskoruð yfirráð yfir auðlindunum væru í boði. Hæstv. forsætisráðherra gat ekki svarað því hvort það ætti ekki að hefja viðræðurnar einmitt á þessu, hvort þetta væri í boði yfirleitt, áður en lengra væri haldið. Ef svo væri ekki, ef svarið væri nei, væri viðræðunum sjálfhætt. Nei, frú forseti, engin svör. Engin svör. Alvarlegt? Alvarlegt, já, fyrir þá sem vilja halda yfirráðum okkar yfir auðlindunum.
Hvað varðar landbúnaðinn, frú forseti, er ljóst að sú atvinnugrein mun leggjast af í núverandi mynd með óheftum innflutningi landbúnaðarvara og innflutningi á lifandi búfénaði hingað til lands þar sem fyrir eru óvarðir búfjárstofnar sem flestir hafa verið að mestu ósnortnir allt frá landnámi. Í Evrópu eru landlægir búfjársjúkdómar fleiri en tölu verður á komið. Hvaða undanþágur telja stjórnvöld sig geta fengið hvað varðar landbúnað? Hvað telja menn sig geta áunnið sér þar frá landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins? Hvað með fæðuöryggið margumtalaða? Að við getum fætt okkur ef í harðbakkann slær? Vörpum við þessu bara fyrir róða? Já, líkast til.
Í fimmta lagi, frú forseti, er reynt að ginna þjóðina til fylgilags við aðild að Evrópusambandinu og upptöku evru því þá myndu vextir snarlækka hér til hagsbóta fyrir íbúðakaupendur. Hér er litið fram hjá því að það leyfist engri þjóð að taka upp evru nema hún sé áður búin að koma skikki á sín fjármál og koma verðbólgu og þar með vöxtum niður á það stig eins og gerist og gengur í Evrópusambandinu. Í þeim efnum hefur sitjandi ríkisstjórn gefist upp. Sitjandi ríkisstjórn hefur gefist upp í þeim efnum eins og þjóðinni er kunnugt um. Hún eykur ríkisútgjöldin um 143 milljarða á árinu, 143 milljarða, snertir aldrei sleggjuna enda ráða þau ekki við neitt slíkt verkfæri. Þau hækkuðu skatta á almenning og fyrirtæki í landinu um tugi milljarða og eru svo steinhissa á því að verðbólga og vextir fari hækkandi, alveg rasandi hissa. Hækkuðu ríkisútgjöld, hækkuðu skatta og eru svo steinhissa á því að verðbólga og vextir skyldu ekki lækka. Hvers lags öfugmælavísur höfum við verið að hlusta hér á, frú forseti? Svo furða menn sig á því að Seðlabankinn lækki ekki vexti á meðan ríkisstjórnin kyndir undir verðbólgubálinu, kyndir sjálf undir því með aðgerðaleysi sínu og skattahækkunum. Hversu oft þarf að benda á það að til þess að ná niður vöxtum og verðbólgu, sem er okkar eigið verkefni, þarf að taka á útgjaldahlið ríkisfjármálanna, á útgjaldahlið ríkisins. Vandamálið er ekki tekjuhliðin eins og þau hafa verið upptekin af heldur útgjöldin sem þarf að lækka.
Frú forseti. Við erum að fara að senda samninganefndir til Brussel, ef niðurstaðan verður jákvæð í haust, til að semja um aðild okkar að Evrópusambandinu. Þær verða sendar þangað af fólki sem telur og leitast við að telja okkur trú um að það fái einhverjar sérstakar undanþágur frá grundvallarreglum sambandsins sem aldrei hafa þekkst, aldrei. Fólki sem hefur þessa glýju í augum gagnvart kommisserunum sem sitja hinum megin við borðið. Hverjir treysta hæstv. utanríkisráðherra til að semja fyrir okkur, minnugir þess, frú forseti, þegar allt í einu birtist samningur um skerta hlutdeild Íslendinga í makrílkvótanum síðastliðið haust. Allt í einu birtist samningur. Hér hafið þið afspyrnugóðan samning, gjörið svo vel. Skert hlutdeild, takk fyrir. Eigum við að treysta þessu fólki fyrir samningsumboði landsins? Makrílsamningur, æðislegur. Skerðing, æðislegur samningur. Eigum við að treysta þessu fólki fyrir að semja um auðlindir lands og þjóðar? Eigum við að gera það?
Frú forseti. Fjölmörg álitaefni eru í þessu máli. Stærsta málið að mínu viti er að ríkisstjórninni ber að sjálfsögðu að upplýsa þjóðina um hver samningsmarkmið okkar eru í þessari vegferð. Hverju eigum við að ná fram? Hverju ætlum við að ná fram? Þau hafa ekki gert það. Varanlegum og fullum yfirráðum okkar yfir fiskstofnunum hér við land eða kannski ekki, frú forseti? Af hverju upplýsa þau okkur ekki um það? Þau fara óbundin — þeim leyfist hér á þingi að fara óbundin inn í þessar samningaviðræður.
Eru samningsmarkmið um fulla vernd íslensks landbúnaðar fyrir iðnaðarvæddum landbúnaði Evrópulandanna þar sem búfénaður gengur víða fyrir sýklalyfjagjöf til að geta þrifist? Og hver eru markmið ríkisstjórnarinnar hvað varðar orkuauðlindir okkar? Er þetta eðlilegt? Er það eðlilegt að þjóðin eigi að fara að kjósa um það að veita ríkisstjórninni umboð til að fara til Brussel til að semja við kommissarana í Brussel hafandi ekki markmið varðandi mikilvægustu þætti íslensks þjóðlífs eins og fiskveiðiauðlindir, landbúnaðinn okkar, orkuauðlindirnar okkar og fleira slíkt? Er það eitthvað eðlilegt? Nei, frú forseti, þetta er í hæsta máta óeðlilegt.
Þau eru svo upptekin, frú forseti, eins og kemur oft fram í viðtölum við hæstv. ráðherra, af áhuga Evrópulanda á þessari vegferð okkar. Þeim finnst það einna merkilegast í málinu. Hvernig er þetta? Hvað er þetta? Upprifin af áhuga kommissaranna í Evrópu og hafa líkast til mestar áhyggjur af því að íslenska þjóðin kynni að valda þeim vonbrigðum í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu, að það myndi valda kommissörunum í Brussel vonbrigðum ef íslenska þjóðin myndi hafna þessu stórkostlega fyrirbæri sem Evrópusambandið er, sem öllu getur bjargað og allt getur lagað og allt fært til betri vegar. Hvernig gæti þessari þjóð dottið það í hug að hafna því að ganga til liðs við slíkt samband?
Það eru 764 ár síðan við misstum sjálfstæði okkar í hendur erlends konungsríkis 1262. Það tók eitt hundrað ár frá því að Jón Sigurðsson forseti settist á þing sem þingmaður Ísfirðinga og Ísafjarðarsýslu og tók að berjast fyrir sjálfstæði landsins. Það tók eitt hundrað ár frá því að hann settist á þing þangað til við fengum sjálfstæði okkar 1944. Síðan eru liðin 82 ár sem við höfum haft sjálfstæði. Við ætlum á svipaðan hátt og 1262, á mjög svipaðan hátt, frú forseti, að gera samninga við erlent vald gegn einhverjum greiðum og afsala okkur yfirráðum og sjálfstæði okkar. Þetta mál sem við erum að ræða núna — og mörgum finnst nóg komið af umræðum hér og eru steinhissa á því að þingmenn Miðflokksins skuli voga sér að fara upp í ræðupúltið oftar en tvisvar, þrisvar sinnum og tefja þetta. Þetta er mikilvægasta mál, frú forseti, sem við höfum fjallað um hér á þingi áratugum saman. Ég er í minni fyrstu ræðu hér, fyrstu ræðu. Ég hef margt um málið að segja og gæti haldið fleiri ræður en þessa einu, svo sannarlega.
Við erum að fara í atkvæðagreiðslu 29. ágúst nk. um það hvort við ættum að hefja viðræður á ný við Evrópusambandið. Ef niðurstaðan verður jákvæð að mati íslenskra ráðamanna — ef hún verður neikvæð verður engin seinni atkvæðagreiðsla þannig að það loforð er fyrir bí. Þau eru búin að kasta því í ruslafötuna. Það loforð er fyrir bí eins og mörg önnur loforð. Ef það kemur næsta atkvæðagreiðsla, hvort við ætlum að verða aðilar að Evrópusambandinu, þá er málinu ekki lokið. Það þarf, frú forseti, að breyta stjórnarskránni. Það þarf að breyta íslensku stjórnarskránni og gefa þar heimild til að afsala sér hluta af fullveldi landsins til Evrópusambandsins og það kostar samþykki tveggja þinga, frú forseti. Það þarf sem sagt kosningar á milli. Við erum að tala um þriðju kosningarnar raunverulega um þetta mál og það má auðvitað ekki gerast, frú forseti. Ég er kannski að hugsa svolítið langt en það má auðvitað ekki gerast að þær atkvæðagreiðslur verði eitthvað í nánd við hvor aðra, þ.e. atkvæðagreiðslan um aðild og atkvæðagreiðslan til þings til þess að breyta stjórnarskránni í þessa veru. (Forseti hringir.) Það gæti leitt til mjög einkennilegrar niðurstöðu ef til þings myndu koma þingmenn sem væru andsnúnir þeirri niðurstöðu sem hlýst í hinni atkvæðagreiðslunni.(Forseti hringir.)
Ég bið frú forseta að setja mig aftur á mælendaskrá því ég náði ekki að klára.