157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:07]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Við í Framsókn treystum þjóðinni til þess að taka rétta ákvörðun í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Við höfum gert alvarlegar athugasemdir við þingmálið. Málið er illa undirbúið. Það fór ekki í samráðsgátt. Samningsmarkmiðin eru óljós. Umsagnaraðilar fengu ekki nægan tíma til að fara yfir umsagnir sínar. Nefndin fékk takmarkaðan tíma til þess að ræða málið og það hafa ekki öll gögn í málinu komið fram þrátt fyrir áskoranir okkar í Framsókn um að öll gögn séu uppi á borðum og að algjört gagnsæi ríki í málinu til þess að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun.

Framsókn telur hagsmunum Íslands best borgið utan Evrópusambandsins. Þessum sjónarmiðum hafa þingmenn Framsóknar komið skýrt á framfæri síðustu daga og að óbreyttu (Forseti hringir.) höfum við lokið máli okkar. Málið fer nú til þjóðarinnar og við treystum henni til að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður að Evrópusambandinu.