þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Í annarri ræðu minni um þetta mál ætla ég að freista þess að halda aðeins áfram með formsatriði málsins sem þó víkja örlítið að efninu sem slíku. Í fyrri ræðu minni nefndi ég að hér hefur öllu verið snúið á hvolf þegar kemur að forminu og áhuga fyrir því að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu þrátt fyrir að, ef að líkum lætur, það sé ekki einu sinni meiri hluti á þinginu fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Það er a.m.k. rétt að ég ítreki og árétti að ég fyrir mitt leyti leggst gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þar af leiðandi leggst ég líka gegn því að farið sé í aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Ég vék stuttlega að einu hagsmunamáli. Þau eru auðvitað mörg og það er ekkert eitt sem veldur því að maður hefur þá afstöðu að Íslandi sé betur borgið utan Evrópusambandsins, það er ekkert eitt sérstakt mál, það eru mörg mál. Ég nefndi þó hins vegar auðlindir Íslands, allar auðlindir okkar í hafinu í kringum Ísland, lögsögu, efnahagslögsögu Íslands, landgrunn og landhelgi og allar þær auðlindir sem þar finnast, sem sagt sjávarútvegurinn okkar. Ég hygg nú að allir landsmenn séu sammála mér í því, a.m.k. langflestir og jafnvel allir þingmenn, jafnvel þeir sem hér róa að því öllum árum að koma Íslandi inn í Evrópusambandið, að það komi ekki til greina að Ísland afsali sér forræði á auðlindum hafsins og ekki heldur kannski stjórn fiskveiðanna, um formið. En þess vegna hefur það verið nefnt að það sé mikilvægt að ef svo kynni að fara að Ísland færi í þessar aðildarviðræður þá yrði það gert með því skilyrði eða sú grundvallarforsenda lögð fram strax í upphafi slíkra viðræðna að Ísland yrði ekki selt undir hina sameiginlegu sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins sem myndi ganga gegn hagsmunum Íslands. Það liggur alveg fyrir. Menn þekkja hver hin sameiginlega sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins er. Hún þjónar ekki hagsmunum Íslendinga nema síður sé. Það yrði að liggja fyrir af hálfu stjórnvalda strax í upphafi að Ísland myndi aldrei selja sig undir hana og sú undanþága sem Ísland myndi krefjast að fá frá hinni sameiginlegu sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins yrði í formi varanlegra undanþága.
Þetta hugtak, varanlegar undanþágur, hefur þýðingu bæði að formi til og efni vegna þess að í lögfræði Evrópusambandsins er um að ræða þrjár ólíkar tegundir frávika frá almennum reglum sambandsins. Það er í fyrsta lagi um að ræða fyrirbæri sem heitir varanleg undanþága. Svo er til fyrirbæri í öðru lagi sem heitir tímabundin undanþága eða aðlögunarákvæði og svo er í þriðja lagi um að ræða sértækar lausnir í afleiddri ESB-löggjöf eða framkvæmd. Ég bið þá sem á hlýða eða kunna að lesa þessa ræðu síðar að virða mér það til vorkunnar að þetta kann að vera leiðinlegt umræðuefni, einhverjum kann að finnast þetta vera eitthvert lögfræðistagl, en það skiptir raunverulega mjög miklu máli að menn átti sig á stöðu þessara frávika frá almennum reglum sambandsins og að menn átti sig á því hversu mikilvægt það er að þær undanþágur sem Ísland ætlar að óska eftir þegar kemur að auðlindum Íslands verði í formi varanlegra undanþága. Það er vegna þess að varanlegar undanþágur eru frávik frá reglum Evrópusambandsins sem eru fest í aðildarsamningi eða bókun eða öðru því sem kallað er frumréttarheimild sem nýtur sömu stöðu og stofnsáttmálar ESB.
Til að heimfæra þetta upp á íslenskan veruleika mætti kannski í grófum dráttum lýsa þessum varanlegu undanþágum sem ígildi stjórnarskrárákvæðis, þetta eru ákvæði og undanþágur sem njóta rétthæðar yfir öðrum reglum Evrópusambandsins. Þar með er ekki hægt að hrófla við þessum varanlegu undanþágum nema með sérstaklega krefjandi hætti af því að þær hafa einhvers konar stjórnarskrárgildi. Það er t.d. ekki hægt að hrófla við stofnsáttmála Evrópusambandsins nema með samþykki allra aðildarríkjanna. Ef undanþága til handa Íslandi fengi þessa sömu stöðu og stofnsáttmálar Evrópusambandsins sem menn þekkja — það er Lissabon-sáttmálinn og Maastricht-sáttmálinn og hvað þetta allt saman heitir, Rómarsáttmálinn fyrst, og hvernig þetta hefur þróast — þá myndi þurfa samþykki allra aðildarríkjanna, þar með talið Íslands, til þess að hrófla við þessari varanlegu undanþágu.
Maður hefði haldið að það yrði útgjaldalítið, létt og löðurmannlegt verk fyrir hæstv. utanríkisráðherra og hæstv. forsætisráðherra að lýsa því yfir hér úr ræðustól Alþingis að það verði ekki farið í þessar viðræður, aðildarviðræður, nema þessu verði lýst yfir skilmerkilega á fyrsta degi viðræðna og jafnvel, eins og ég hef kallað eftir, núna strax í sumar fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Þetta sé sú krafa sem Ísland muni fara með og það yrði byrjað að láta menn í Evrópusambandinu kvitta undir þessa forsendu. Það á ekki að vera til viðræðu að undanþága til handa Íslandi um málefni auðlinda hafsins verði á einhverju öðru formi en sem varanleg undanþága í formi stjórnarskrárígildis.
Maður hefði haldið að það hefði verið auðvelt að lýsa þessu yfir en það er öðru nær. Hér hefur hæstv. utanríkisráðherra verið spurður um það í óundirbúnum fyrirspurnum hvort ekki sé einboðið að gera þetta núna í sumar þannig að þjóðin fái fyrir því fullvissu áður en hún greiðir atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst, eða síðar ef svo ber undir, að þjóðin fái og viti það fyrir þessa atkvæðagreiðslu að þetta sé samningsmarkmið Íslands, þetta sé svona ákveðið grundvallarskilyrði fyrir því að halda viðræðum áfram við Evrópusambandið. En hæstv. utanríkisráðherra, þrátt fyrir að hafa fengið þessa skýru spurningu, hefur ekki getað svarað því játandi, hefur ekki getað fullvissað þjóðina um það hér úr þessum ræðustól að þannig verði hlutirnir.
Það er mikið áhyggjuefni frá mínum bæjardyrum séð að ráðherrar í þessari ríkisstjórn treysti sér ekki til þess í þessum þingsal að halda á lofti þessum sjónarmiðum sem ég þó held að öll þjóðin geti sammælst um að séu grundvallaratriði í samskiptum Íslands, ekki bara við Evrópusambandið heldur við allar þjóðir heimsins, þ.e. að Ísland fari ávallt með fullt og óskorað forræði yfir öllum auðlindum Íslands og yfir því stjórnkerfi sem Íslendingar velja á hverjum tíma til að nýta og stýra þessum auðlindum. Það er með ólíkindum að ráðherrar hafi ekki getað upplýst um þetta. Það er óforsvaranlegt og óásættanlegt frá mínum bæjardyrum séð og frá bæjardyrum Miðflokksins séð að menn ætli ekki að gefa upp þessi samningsmarkmið fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna en vísa þess í stað til skýrslna sem verða gefnar út eftir (Forseti hringir.) þjóðaratkvæðagreiðsluna, fari svo að þjóðin greiði því atkvæði að fara í þessar aðildarviðræður, sem ég hvet auðvitað þjóðina til að gera aldeilis ekki heldur (Forseti hringir.) hafna þessum vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar og segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu.