157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:20]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M):

Frú forseti. Ég var að fara yfir nefndarálit 2. minni hluta utanríkismálanefndar og á enn nokkuð eftir þótt lengd þessa álits hafi verið stillt í hóf miðað við tilefnið. Það helgaðist að nokkru leyti af því hversu skammur tími var gefinn til að fara yfir þetta mál og rita nefndarálit. Engu að síður á ég eftir að rekja nokkur grundvallaratriði og hef þó sleppt ýmsum sem við sjáum til hvort tími vinnst til síðar að nefna. Þó vildi ég, frú forseti, nota tækifærið, svo ég þurfi ekki að fara sérstaklega í fundarstjórn forseta um það strax, og minna hæstv. forseta á að hér er búið að biðja um ákveðin grundvallargögn í þessu máli, gögnin úr leyniherberginu. Ég nota tækifærið nú og minni hæstv. forseta á það að þessi beiðni hefur ítrekað verið lögð fram hér og enn hafa ekki borist viðbrögð frá hæstv. forseta.

Ég held áfram með nefndarálit 2. minni hluta utanríkismálanefndar. Þegar frá var horfið var ég kominn að skilyrðum umsóknarinnar, mál sem hv. þm. Sigríður Á. Andersen gerði að umtalsefni hér áðan ásamt ýmsu öðru. Þetta var heilmikið rætt í störfum nefndarinnar þar sem kallað var eftir því af hálfu minni hlutans að fyrir lægi hvaða viðmið, rauð strik er það stundum kallað, hvaða skilyrði yrðu lögð til grundvallar ef hæstv. utanríkisráðherra færi af stað til Brussel til viðræðna við Evrópusambandið um aðild Íslands að sambandinu. Þær viðræður, eins og komið hefur fram, snúast um það að Ísland aðlagi sig sambandinu til að reyna að sýna því fram á að það sé óhætt að hleypa Íslandi inn. En það hefur reynst afskaplega erfitt að fá svör við því hvert umboð hæstv. utanríkisráðherra verði í þessum samningum og ekki annað að sjá en að það sé bara opið umboð, óútfylltur tékki á fullveldi landsins fyrir hæstv. utanríkisráðherra í viðræðum við Evrópusambandið.

Það sem var talsvert rætt í nefndinni og er áhugavert í þessu samhengi er að þegar umsóknin var upphaflega lögð fram, réttara sagt þegar þingsályktun er ákveðin hér á Alþingi árið 2009 og utanríkisráðherra og forsætisráðherra falið að sækja um aðild að Evrópusambandinu, þá var það gert með ákveðnum skilyrðum. Fyrir nefndina komu gestir, þar með taldir ráðherrar úr þeirri ríkisstjórn, og lýstu því að þessi skilyrði hefðu sérstaklega verið tekin fyrir í ríkisstjórninni á ríkisstjórnarfundi, bókað um það, og hefði verið grundvöllur þess að hægt væri að ná meiri hluta fyrir þingsályktunartillögunni á sínum tíma. Og hvers vegna er þetta mikilvægt í samhengi við umræðuna núna? Jú, vegna þess að hér er því haldið fram af hálfu stuðningsmanna núverandi tillögu að hún byggist ekki bara á umsókninni frá því síðast heldur þingsályktunartillögunni frá árinu 2009. Menn segja: Hún var aldrei dregin til baka. Þess vegna er hún enn í gildi sem grundvöllur umsóknarinnar.

Það er reyndar fráleitt að halda því fram að eitt þing geti bundið öll þing sem á eftir koma óendanlega með þingsályktun, en látum það liggja á milli hluta. Það hefur verið notað sem rök að umsóknin nú byggi á þingsályktuninni frá 2009. Og þar voru skilyrði. En nú vilja menn ekki árétta þessi skilyrði og geta ekki svarað því, hv. þingmenn meiri hlutans og hæstv. ráðherrar, hvort skilyrðin gildi enn þó að það eigi að byggja á þingsályktunartillögunni og þingsályktuninni frá 2009. Það fást ekki svör við því hvort skilyrðin frá þeim tíma séu enn í gildi. Þá er varla hægt að draga aðra ályktun en þá að ekki standi til að gera neitt með þau skilyrði.

Reyndar verður að fylgja sögunni að það var ekkert gert með skilyrðin síðast heldur. Þessu lýstu þeir fyrrverandi ráðherrar sem komu fyrir nefndina mjög glöggt og töldu sig svikna. En þá sögu, þá svikasögu, frú forseti, verð ég að rekja í næstu ræðu og æski þess að verða skráður aftur á mælendaskrá.