þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Það sem er mikilvægt að liggi fyrir áður en við getum klárað þetta mál er hvað gerist ef þjóðin segir nei og hvað gerist ef þjóðin segir já. Það eru mikilvægir punktar sem hafa ekki enn þá komið fram. Það liggur fyrir að ef við segjum nei þá væntanlega verða ekki hafnar þessar aðlögunarviðræður en engu að síður liggur fyrir að þessi ríkisstjórn heldur því stöðugt fram að við séum með gilda umsókn. Reyndar hefur það komið á daginn að umsóknin er ekki gild nema að því leyti að hún er einhliða gild að mati Evrópusambandsins. Evrópusambandið viðurkennir að við höfum óskað eftir því að vera ekki umsóknarríki en þeir sjálfir hafa ákveðið að halda einhvers konar skilgreiningu á umsókninni inni, þó ekki meira en svo að það gæti verið að öll ríki þurfi að samþykkja ef við förum aftur í aðlögunarviðræður við Evrópusambandið.
Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera ef við segjum nei? Mun hún sjá til þess að þessu verði formlega hætt? En það sem er enn þá mikilvægara er: Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera ef þjóðin segir já? Þá liggur fyrir að við förum í þessar aðlögunarviðræður. En eins og hefur verið að koma hér fram hjá hv. þingmönnum Miðflokksins þá liggur ekki fyrir hvar rauðu línurnar eru. Engu að síður hefur hæstv. forsætisráðherra sagt að hún muni sjálf ein ákveða hvort þjóðin fái að sjá samninginn. Þýðir það ekki bara að ef við fáum ekki að sjá samning þá er það af því að ríkisstjórnin hefur endað út í skurði? En við þurfum að vita hvað gæti orðið til þess að við endum út í skurði. Er það það sem stendur í nefndaráliti meiri hlutans? Ég óttast að svo sé ekki vegna þess að hæstv. utanríkisráðherra hefur til að mynda ekki viljað staðfesta að hún telji það algjört skilyrði að undanþágurnar verði varanlegar. Þetta er mjög óljóst og óljóst hvort þetta sé orðið núna þriggja þrepa kerfi. Það verður að liggja fyrir.
Það sem er undarlegt er að þessum lykilspurningum er ekki einu sinni reynt að svara. Af hverju? Jú, málið er keyrt áfram með þeim hætti að tíminn sé svo skammur að það sé ekki tími fyrir umræðu. En tíminn er ekki skammur. Ríkisstjórnin sjálf kom sér í þá aðstöðu að verða að hafa atkvæðagreiðsluna einhvern ákveðinn dag. Ég sé ekki að það skipti nokkru máli hvort atkvæðagreiðslan fari fram viku eða tveimur vikum síðar ef við fáum nánari og betri svör við grunnspurningunum: Hvað þýðir þetta, hvað þýðir að segja já í ágúst eða september?
Það er líka mjög óásættanlegt að hæstv. ráðherrar taki ekki þátt í umræðunni. Okkur var lofað í gær að hæstv. utanríkisráðherra myndi koma seinni partinn eða um kvöldið og taka þátt. Hún skráði sig ítrekað á mælendaskrá, færði sig svo neðar og endaði með því að taka ekkert þátt. Hæstv. forsætisráðherra hefur ekkert komið og þingmenn meiri hlutans sem voru á mælendaskrá í gærkvöldi tóku sig af henni þannig að það er ekki einu sinni hægt að eiga orðastað við hv. þingmenn meiri hlutans til að fá svör við þessu né hæstv. ráðherra. Í ofanálag var hér óundirbúinn fyrirspurnatími í gær þar sem var enginn af þeim hæstv. ráðherrum sem maður hefði viljað reyna að fá svör hjá við þessum spurningum, eins og hæstv. forsætisráðherra, hæstv. utanríkisráðherra eða hæstv. fjármálaráðherra, sem þarf að tryggja að það verði hægt að borga fyrir þessa vegferð. Enginn þeirra kom í óundirbúinn fyrirspurnatíma í gær til að hægt væri að spyrja þessara lykilspurninga á degi sem ríkisstjórnin telur þó að mikið liggi við að klára umræðuna. Hvenær ætla þau að koma? Sjá þau fyrir sér að koma í næstu viku og svara spurningum þegar það verður búið að keyra þetta mál áfram?
Miðflokkurinn hefur óskað eftir því að fá þessar upplýsingar. Við höfum óskað eftir því að leynd verði aflétt af þeim gögnum sem eru um samskipti hæstv. utanríkisráðherra við Evrópusambandið um þetta mál. Ef það er eitthvað annað, eitthvert ofboðslega mikilvægt milliríkjamál, er auðvitað hægt að stroka það út. Ríkisstjórnin segist treysta þjóðinni. Nú skulum við sjá hvort hún treysti henni raunverulega.