þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir ágæta yfirferð og tek hjartanlega og heils hugar undir þau sjónarmið sem lúta að réttmæti þess að hér séu gögn borin á borð sem varða samskipti Íslands við Evrópusambandið í ýmissi mynd. Það eru upplýsingar sem ég tel að kjósendur í yfirvofandi þjóðaratkvæðagreiðslu hljóti að þurfa að geta glöggvað sig á. Mér finnst athyglisvert, fyrst við erum í þessari umræðu, að byrja kannski á að setja það aðeins í samhengi hver nálgun hinnar klofnu ríkisstjórnar er gagnvart þessu máli að þessu sinni og hvað það þýðir fyrir kjósendur og landsmenn, sem eru að gera upp hug sinn andspænis þessari yfirvofandi þjóðaratkvæðagreiðslu, að í raun og veru hafi ríkisstjórnin svona takmarkaðan áhuga á að láta þær upplýsingar í té sem þó væri vert. Eiríkur Svavarsson, sem er varaþingmaður Miðflokksins og sérlega fróður um utanríkismál að þessu leyti, skrifar, með leyfi forseta:
„Klofin ríkisstjórn leitar eftir umboði þjóðarinnar til að sækja um aðild að Evrópusambandinu á grundvelli umsóknar frá árinu 2009. Ein grundvallarbreyting er þó gerð núna ólíkt ferlinu 2009. Nú á ekki að setja þau rauðu strik sem Alþingi setti framkvæmdavaldinu árið 2009. Þannig er það t.d. ekki skilyrði vegferðarinnar nú að Ísland hafi varanlegt og óskorað forræði á auðlindum þjóðarinnar. Nú á að taka rauðu strikin úr sambandi, hafa þau bara til hliðsjónar og krafan er sú að þjóðin veiti utanríkisráðherra fullt svigrúm til að víla og díla um grundvallarhagsmuni íslensku þjóðarinnar. Á sama tíma eru 297 blaðsíður af gögnum, sem beinlínis varða það ferli sem nú er óskað eftir umboði frá þjóðinni fyrir, lokuð inni í skáp og aðeins tilteknir þingmenn þjóðarinnar mega skoða þau gegn trúnaði um að þeir muni aldrei á ævi sinni upplýsa né ræða þau skjöl.“
Þetta er býsna beinskeytt lýsing á þeirri stöðu sem upp er komin og grundvöllur þeirrar sjálfsögðu kröfu okkar nú að leynd verði aflétt af a.m.k. hluta þeirra gagna sem ljóst er að skaðar hvorki hagsmuni okkar né hins mótaðilans að hulunni sé svipt af. Þá er til þess að taka að mínar upplýsingar innan úr utanríkismálanefnd eru á þá leið, það leiðréttist þá ef ekki er farið með rétt mál, að ekki hafi yfirleitt verið vilji hjá forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar í utanríkismálanefnd til þess að ræða það við mótaðilann að hvaða leyti væri unnt að birta þessi skjöl þannig að menn vildu ekki einu sinni fara í að skoða það hvort þetta þyrfti að vera bundið þeim trúnaði sem þó var lagt upp með, út frá hagsmunum hinna aðilanna. Þar með vitum við bara að það eru hagsmunir eða einhverjar ástæður alla vega fyrir því að menn vilja halda þessu leyndu fyrir þingmönnum sem eru að taka afstöðu til málsins í þessari lotu og svo auðvitað þjóðinni sem þyrfti að vera upplýst um það hver þessi samskipti hafa verið.
Ástæðan fyrir því að þjóðin þarf að vera upplýst um þessi samskipti er einmitt þessi óvissuferð sem lagt er upp með. Við erum hér að tala um þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem rauðu strikin svonefndu eru ekki umgjörð umræðunnar heldur er í raun og veru gefið mjög ríkulegt umboð til ríkisstjórnarinnar, sem vel að merkja er klofin í málinu. Ég hef bent á það að það er raunverulegt grundvallarvandamál við þetta ferli. Ef þú ætlar að fara með þjóðina inn í þetta aðildarferli þá færi auðvitað mun betur á því að ríkisstjórnin væri einhuga um það. Ekki aðeins vantar upp á það þegar horft er til Flokks fólksins sem tekur skýra afstöðu gegn Evrópusambandsaðild heldur er það einnig spurning hver afstaða t.d. forystu Samfylkingarinnar er til málsins á ólíkum stigum. Hún er að vísu tiltölulega breytileg, sérstaklega núna á allra síðustu dögum og vikum þar sem komið hafa fram yfirlýsingar um að ekki verði farið í þjóðaratkvæðagreiðsluna síðari, sem þó er boðuð frekar skýrt í þingsályktunartillögunni. Það verði ekki farið í slíka þjóðaratkvæðagreiðslu ef hæstv. forsætisráðherra hugnast ekki samningurinn út frá mælikvörðum sem lýst hefur verið í viðtölum. Nefnd eru atriði eins og fullveldi, sjálfstæði og efnahagslegir hagsmunir. En þetta er ekkert skýrt nánar. Þjóðin þarf þá að greiða atkvæði með eða á móti því að við förum í aðildarviðræður án þess að vita hvaða skilyrði menn hafa hugsað sér fyrir fram fyrir því að þetta loforð verði efnt, þ.e. þessi skýra stefna sem mörkuð er í þingsályktunartillögunni um að fara í þjóðaratkvæðagreiðsluna.
Þess vegna er þessi óvissuferð. Ekki aðeins eru það rauðu strikin, rauðu línurnar sem menn neita að draga heldur einnig þessi tónn um að alveg eins líklegt sé að samningurinn, hvenær sem hann liggur fyrir og í hvaða mynd sem það verður, verði ekki lagður fyrir þjóðina. Þar draga menn mörkin gagnvart þessu margumtalaða trausti gagnvart þjóðinni. Þeir treysta ekki þjóðinni fyrir hvaða samningi sem er vegna þess, væntanlega, að ef þeim þætti samningurinn ófýsilegur þá myndu þeir ekki telja að hann ætti erindi við þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er auðvitað ákveðin mótsögn í öllum málflutningnum um að treysta beri þjóðinni óháð manns eigin afstöðu sem maður heyrir æ ofan í æ frá stjórnarliðum. Menn láta sem svo að þeir séu bara alls ekki búnir að gera upp hug sinn gagnvart þessu öllu, ætli bara að sjá til og sjá til, þegar ljóst er að undirliggjandi afstaða er önnur. En það er önnur saga.
Gagnvart þessum kringumstæðum, þessari óvissu um það hvað já í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu felur í sér, er það sjálfsögð skylda stjórnarandstöðuflokka, að mínu mati, sem bera ábyrgð á þessu gagnvart þjóðinni á sinn hátt, að vara við þessu, reyna eins og hægt er innan þings á meðan þing er enn starfandi að særa fram þessar upplýsingar sem geta varðað miklu gagnvart endanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu. Svo sér maður hæstv. utanríkisráðherra, formann Viðreisnar, fara með afar óábyrgan málflutning í erlendum fjölmiðlum um að þeir sem leggist gegn þessu séu með einum eða öðrum hætti annaðhvort að herma eftir einhverjum vafasömum erlendum aðilum, eins og látið er að liggja, eða séu hreinlega undir einhvers konar áhrifum þessara aðila eins og gefið er í skyn í viðtali við Guardian sem ég vísaði til hér í þinglegri umfjöllun máls í störfum þingsins fyrr í dag. Þar fer ráðherrann með algerlega óstaðfestar kenningar sínar um margvísleg erlend afskipti af yfirvofandi þjóðaratkvæðagreiðslu, grefur þar með undan trú á lýðræðislegri umræðu og lýðræðishefðinni á Íslandi í alþjóðlegum fjölmiðlum, sem er auðvitað ábyrgðarhluti, og það alveg án þess að nokkuð sé staðfest um það sem hæstv. ráðherra vísar til. Að vísu benti ég á að það eina sem við höfum séð um staðfest dæmi um óeðlileg afskipti einhvers konar internetafla í þessari ESB-umræðu hingað til á Íslandi hefur verið umfjöllun fjölmiðla um svokallaða Viðreisnarbotta. Það eru gerviaðgangar á samfélagsmiðlum sem eiga að vera Íslendingar en eru þó ekki í þjóðskrá, titlar, gervinöfn sem fara á milli stöðuuppfærslna og fréttadeilinga, herja á andstæðinga Evrópusambandsins, mæra Viðreisnarlið, Viðreisnarráðherra. Það er undarlega íhlutunin sem við höfum séð hingað til þótt enginn viti undan hvaða rótum hún er runnin á þessu stigi. Viðreisn hefur svarið þessa herferð af sér og óljóst hver stendur á bak við þetta. Hæstv. ráðherra virðist ekki hafa áhyggjur af þessari herferð en ímyndar sér að ýmislegt annað vafasamt sé í gangi. Þar með tel ég að ráðherrann fari inn á ansi hála slóð, að gera venjulegum Íslendingum sem setja sig upp á móti aðild að Evrópusambandinu af málefnalegum ástæðum upp einhvers konar, hvað getur maður sagt, ósjálfstæði í hugsun að því marki að það hljóti hreinlega að vera einhver erlendur aðili sem skapi jarðveg fyrir slíkar rangar hugsanir í huga ráðherrans. Þar með er auðvitað stjórnarandstaðan líka að því marki komin undir þessar undarlegu kenningar ráðherrans þegar menn eru raunverulega að horfa á gögn málsins og reyna að tryggja eins og kostur er að áður en þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu er samþykkt hér séu allar tilraunir gerðar til þess að fá fram í gegnum leiðir þingsins nauðsynlegar upplýsingar til þess að fólk geti tekið upplýsta afstöðu um þetta.
Upplýsingarnar liggja ekki fyrir. Það liggur ekki fyrir með hvaða hætti þetta ferli verður nákvæmlega. Við höfum verið í svipuðu ferli hér fyrir 10–15 árum þar sem hlutirnir fóru alls ekki á þann veg sem boðað hafði verið. Það má ganga út frá því að svona ferli geti verið mjög vandasamt, flókið, breytilegt eftir aðstæðum. En við þurfum að gera allt sem við getum fyrir fram hér í þinginu áður en við samþykkjum þessa þingsályktunartillögu til þess að öll kurl geti komið til grafar eins og kostur er. Auðvitað getum við ekki vitað allt fyrir fram en við getum gert það sem við getum. Þess vegna setjum við fram þessa sjálfsögðu kröfu um að menn leitist við að skoða hvaða hluti (Forseti hringir.) þessara upplýsinga sem haldið er leyndum inni í utanríkismálanefnd, geti vel komið fram fyrir (Forseti hringir.) þing og þjóð. Svo er hægt að ræða málefnalegan flöt á því að halda leynd yfir því sem ekki er kostur á að birta.