þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Við ræðum hér tillögu utanríkisráðherra Viðreisnar til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður eða aðlögunarviðræður að Evrópusambandinu. Ég hef ítrekað vakið athygli á því í þeim ræðum sem ég hef flutt um þetta mál að hvergi er að finna samningsmarkmið nema það er vísað til samningsmarkmiða Jóhönnustjórnarinnar hinnar fyrri. Það er hvergi að finna rauðar línur sem þessi ríkisstjórn setur fram, þ.e. ef til aðlögunarviðræðna kemur sem ekki er vitað enn þá. Þetta finnst mér stórlega ámælisvert. Hvernig á íslensk þjóð að geta tekið ákvörðun um hvort farið verði í slíkar aðlögunarviðræður þegar ekki liggur fyrir t.d. hvort rauðar línur verði dregnar um auðlindir Íslands, rauðar línur verði dregnar um íslenskan landbúnað í þeirri mynd sem hann er í dag, þ.e. að tollvernd verði ekki afnumin? Reyndar kemur fram í nefndaráliti meiri hlutans að tollvernd á innfluttar landbúnaðarafurðir frá Evrópusambandsríkjum verði afnumin verði af samningi. Það er þá alla vega skýrt, það hefur komið fram. En það er hins vegar slæmt. Það er bara óskaplega sorglegt að ríkisstjórn sem hér er við völd sé með það beinlínis að markmiði, hlýtur að vera markmið, að afnema tollvernd fyrir íslenskar landbúnaðarvörur gagnvart innflutningi frá ríkjum Evrópusambandsins. Ríkisstjórn sem leggst flöt og samþykkir slíkt þegjandi og hljóðalaust getur ekki verið annt um innlenda matvælaframleiðslu. Henni getur ekki verið annt um byggð í þessu landi. Henni getur ekki verið annt um bændur og allar þær fjölskyldur sem þeim tengjast. Henni getur ekki verið annt um þjóðaröryggi eða fæðuöryggi vegna þess að allt saman tengist þetta.
Mér er spurn og í raun og veru er ég eiginlega sorgmædd yfir því að hér sé ríkisstjórn sem ætli sér að ganga þessa vegferð. Mér finnst það ömurlegt. Þess vegna höfum við í Miðflokknum óskað eftir því að hér verði allt lagt á borð og m.a. verði aflétt leynd eða trúnaði á þessum leynigögnum sem eru geymd hér í einhverju herbergi sem einungis nefndarmenn í utanríkismálanefnd hafa aðgang að, gegn því að þeir ræði ekki þessi gögn, segi ekki frá þeim. Þeir geta ekki einu sinni rapporterað um það, afsakið slettuna, forseti, inni í þingflokkum. Þetta er gjörsamlega óásættanlegt. Þessi gögn þurfa að koma fyrir sjónir alls þingsins, allra þingmanna, og þjóðin þarf að sjá þessi gögn. Þjóðin þarf að vera upplýst um hvað hæstv. utanríkisráðherra er búinn að vera að gera á fundum erlendis með vinum sínum í Brussel sérstaklega. Ég held að við ættum öll að bera meiri virðingu fyrir þjóðinni okkar heldur en þetta. Ég geri það a.m.k. og ég geri þá kröfu að þessi gögn verði birt.
Síðan eru fleiri gögn sem þarf að birta. Ég hef einnig ítrekað komið inn á það í mínum ræðum að fyrrverandi utanríkisráðherra, Gunnar Bragi Sveinsson, hefur ítrekað óskað eftir gögnum frá því að hann var utanríkisráðherra en aðlögunarviðræðunum 2013 var hætt þegar hann var utanríkisráðherra. Maður veltir því fyrir sér hvers vegna utanríkisráðuneytið hefur ítrekað hafnað ósk fyrrverandi ráðherra um að afhenda þessi gögn um lúkningu umsóknarinnar. Það er nefnilega þannig að ríki sækja um aðild að Evrópusambandinu. Það er ekkert ríki sem ætlar sér í aðlögunarviðræður sem ekki ætlar sér að verða aðili að sambandinu. Ég hélt að þetta væri algerlega skýrt. En þar sem tíminn er svo naumur, ég ætlaði að fara betur inn í efnisatriði (Forseti hringir.) óskar fyrrverandi utanríkisráðherra, verð ég að óska eftir því að vera sett aftur á mælendaskrá, forseti.