157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:47]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Áður en ég kem mér að því sem ég ætlaði að hafa sem meginstef í þessu stutta erindi hérna langar mig að bregðast við ummælum sem féllu í störfum þingsins áðan, og ekki í fyrsta skipti, af hálfu hv. þm. Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur, þar sem enn var reynt að endurskilgreina og endursemja afstöðu Flokks fólksins til þessa máls. Hún lá ljós fyrir kosningar. Með leyfi forseta, ætla ég aftur, ég gerði það í gær, í svör frá Flokki fólksins frá því fyrir kosningar. Núna er látið að því liggja í ræðu eftir ræðu hér að flokkurinn hafi alltaf verið hlynntur því að þjóðin fengi að koma að málinu. Þrátt fyrir andstöðu flokksins við inngöngu í Evrópusambandið hafi flokkurinn alltaf verið á þeirri línu að það ætti að spyrja þjóðina út í það hvaða vegferð ætti að fara í. Með leyfi, frú forseti, þá var spurningin sem flokkurinn svaraði svohljóðandi:

„Mun flokkurinn á næsta kjörtímabili styðja það að tekin verði skref í áttina að inngöngu í Evrópusambandið, t.d. með þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort sótt verði á ný um aðild að sambandinu?“

Frú forseti. Svarið var nei. Það er algerlega óþolandi að þurfa að leiðrétta sama atriði aftur og aftur í einhverri vonlausri tilraun einstakra aðila eða flokka til að reyna að endurskrifa sögu sína, sem er bara rétt nýliðin. Þetta er ekki eins og við séum að vitna til einhvers sem gerðist fyrir mörgum árum síðan. Þetta er frá því rétt fyrir kosningar.

Að þessu sögðu, frú forseti, langar mig að halda áfram þar sem frá var horfið í ræðu sem ég hélt hér í gærkvöldi áður en umræðu var frestað. Þar var ég að fjalla um hvað það þýðir í raun og veru það sem kallað er að innleiða að fullu eins og haft hefur verið eftir í heild sinni, svo rétt sé farið með, Mörtu Kos, stækkunarráðherra Evrópusambandsins, hvað það er sem við erum að gefa eftir. Við erum búin að tala mikið um sjávarútveginn. Við erum búin að tala um orkuna og sitthvað fleira, menn hafa jafnvel rætt um vindinn og ýmislegt en það er fleira þarna undir en bara hinar efnislegu auðlindir. Það er til að mynda framsalið á framkvæmdarvaldinu. Það liggur alveg fyrir, hvort sem menn vilja fara í einhverja orðaleiki með það að þetta sé afsal á fullveldi, að í besta falli fyrir þá sem eru hlynntir inngöngu væri hægt að segja að þetta væri framsal á fullveldi að mestu leyti. Vissulega er hægt með ærnum tilkostnaði og fyrirhöfn að komast út úr Evrópusambandinu. Það eru nýleg dæmi um það hvernig það gengur fyrir sig og nægir að vitna til Breta hvað það varðar. Það er ekki svo auðvelt að beygja af leið. Það er mun auðveldara í að komast en frá að hverfa.

Annað sem liggur algerlega fyrir og hefur verið rætt hér ítrekað undir öðru dagskrármáli sem sett var á dagskrá í fyrravetur, sem kallað er bókun 35, er framsal á dómsvaldi. Hér getum við ekki sett lög, verði gengið inn í þetta ferli. Hér getum við ekki sett lög á Alþingi Íslendinga og ætlast til þess að dómsvaldið okkar í landinu fylgi þeim lögum. Ef upp kemur sú staða að þau eru ekki samhljóma, íslensku lögin og hin evrópsku, þá gilda lögin frá Evrópusambandinu. Það er klárt og það hefur enginn enn þá getað haldið öðru fram með einhverjum raunverulegum rökum sem einhverju nemur.

Tíminn er hlaupinn frá mér einu sinni enn. Ég ætlaði næst að fara inn á, og ég hyggst þá gera það bara hér á eftir, frú forseti, þá samninga sem okkur hefur verið frjálst að gera frá því að Ísland varð fullvalda ríki. Þeir eru ýmist nefndir tvíhliða samningar eða fríverslunarsamningar. Það er til að mynda eitt af því sem við munum þá semja frá okkur. En þetta er afskaplega skammur tími, frú forseti, og ég óska eftir að vera settur aftur á mælendaskrá.