þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég hafði í minni fyrri ræðu talað töluvert um blekkingar hæstv. ríkisstjórnar og nefndi þar fjölmörg dæmi, ég man ekki hvort þau voru fimm eða sex, vegna þess að framkoma hæstv. ríkisstjórnar og sumra hæstv. ráðherra hefur verið með hreinum ólíkindum. Þeir hafa komið hér með misvísandi skilaboð, hreinar blekkingar, og þyrlað upp moldviðri af ýmsu tilefni. Til dæmis hefur hæstv. utanríkisráðherra látið hafa eftir sér að hann sjái fyrir sér að samningaferlið taki kannski 12 mánuði á meðan formaður hv. utanríkismálanefndar telur að það gæti tekið tvö, þrjú ár.
Frú forseti. Hvað er það sem hæstv. utanríkisráðherra veit sem við vitum ekki? 12 mánuðir og tvö, þrjú ár, þarna á milli er bara mjög langur tími. Hvað er það sem hæstv. utanríkisráðherra hefur í sínum fórum hvað þetta varðar sem við ekki vitum? Skyldi eitthvað af þessu vera í þeim gögnum sem við þingmenn eða þjóðin fáum ekki að sjá og eru geymd inni í einhverju herbergi hér í þinginu og bundin algjörum trúnaði? Eftir einmitt þessum gögnum, frú forseti, 297 blaðsíðum af gögnum, kallaði hv. utanríkismálanefnd undir rekstri þessa máls um samskipti íslenskra ráðamanna við Evrópusambandið út af þessu máli. Hvað skyldi vera viðkvæmt í þessum gögnum sem almenningur og þing og þjóð mega ekki sjá? Það var kallað eftir þessum gögnum út af þessu máli. Þetta eru ekki einhver önnur gögn. Hvað skyldi þarna vera?
Ef það er eitthvað í þessum gögnum, frú forseti, sem er talið svo viðkvæmt, sem varða einhverja hagsmuni sem eru svo viðkvæmir að þau mega ekki opinberast, þá er hægt að hylja það þegar gögnin eru birt. En þarna er að finna samskipti íslenskra ráðamanna við ráðamenn úti í Evrópu síðustu misseri. Auðvitað á þing og þjóð að fá að sjá þessi gögn.
Nýjasta nýtt í þessu máli og kannski ekki nýtt er rantur hæstv. utanríkisráðherra um að hún óttist að erlend öfl, erlendir aðilar, gætu haft áhrif á atkvæðagreiðsluna sem á hér fram að fara eftir þrjá mánuði. Hvers lags moldvirði er hæstv. ráðherra þarna að reyna að þyrla upp? Þetta er beinlínis, frú forseti, hlægilegt. Einu erlendu öflin sem gætu hugsanlega reynt að hafa áhrif á þessa atkvæðagreiðslu sem á að eiga sér stað eftir þrjá mánuði er Evrópusambandið sjálft. Við sáum það hérna á árunum 2009–2013 hverjir það voru sem hingað komu til lands til þess að reyna að hafa áhrif á íslensku þjóðina og hennar afstöðu til aðildar að Evrópusambandinu. Þetta eru einu erlendu aðilarnir sem virkilega opinskátt og augljóslega gætu reynt að hafa áhrif á afstöðu íslensku þjóðarinnar, þeir einu sem ætti kannski að hafa áhyggjur af. Hæstv. utanríkisráðherra gæti hugsanlega fagnað því, en þetta er það eina sem gæti hugsanlega verið af hálfu erlendra aðila. Hvers lags moldviðri er verið að reyna að þyrla upp? Þetta er hlægilegt, frú forseti, hlægilegt. Ég held að menn ættu að reyna að upplýsa þjóðina um kosti og galla aðildar með öðrum hætti en að vera að benda á einhverjar erlendar þjóðir sem er einungis hugarfóstur hæstv. ráðherra að gætu haft áhuga á þessu.
Frú forseti. Ég sagði það kannski ekki í minni fyrstu ræðu að mín afstaða til aðildar að Evrópusambandinu er einföld. Hún er augljóslega nei, ég mun segja nei í komandi atkvæðagreiðslu. Mér hugnast ekki aðild að Evrópusambandinu. Við hér á Íslandi búum við mesta jafnrétti í heiminum. Við mælumst ítrekað með hamingjusömustu þjóðum veraldar. Hér eru laun með þeim hæstu sem mælast. Við erum með besta lífeyriskerfi meðal vestrænna þjóða. Evrópa glímir hins vegar við þann vanda að nýsköpun á sér þar ekki stað, t.d. gervigreindarfyrirtæki sem nú eru þau sem vaxa hvað hraðast, þau finna sig ekki til þess að sinna sínum verkum innan Evrópu heldur flýja álfuna til annarra landa vegna þess að í Evrópu er reglugerðafarganið slíkt að þar er ekki jarðvegur til að reka slík fyrirtæki sem fela í sér mikinn og öran vöxt á skömmum tíma. Þessi fyrirtæki vaxa úr grasi á öðrum stöðum en í Evrópu. Og við ætlum að ganga þarna inn. Atvinnuleysi og sérstaklega atvinnuleysi meðal ungs fólks er mjög mikið í Evrópu. Þangað inn vilja sumir ganga eftir þessa upptalningu mína.
Hér á Alþingi er einungis einn flokkur, Viðreisn, sem hefur það á stefnuskrá sinni að ganga í Evrópusambandið. Ég velti fyrir mér og hef stundum spurt að því hér í þingsal, spurt aðra þingmenn að því, hvað muni gerast ef þjóðin segir nei í atkvæðagreiðslunni eftir þrjá mánuði. Hvað verður um erindi Viðreisnar hér á þingi? Hvert verður þeirra erindi? Um hvað munu þau tala? Hvert verður verkefni þeirra og markmið ef þetta mál fer þannig? Þetta eru mjög áhugaverðar hugleiðingar; hvort erindi Viðreisnar sé ekki bara lokið ef þjóðin segir nei, þau geti bara pakkað saman og hugsað sitt ráð. Þau hafa reyndar fengið smá erindi hér í Reykjavík núna, samkvæmt nýjustu fréttum eru þau búin að mynda meiri hluta í Reykjavíkurborg. Þar hafa kjörnir fulltrúar Viðreisnar eitthvert erindi á næstu árum. En ég velti fyrir mér erindi þingmanna Viðreisnar, hvert það verður, ef niðurstöður þessarar atkvæðagreiðslu verða með þessum hætti.
Einnig má benda á það, frú forseti, þegar verið er að tala um að Ísland ætti að ganga í Evrópusambandið að ef við lítum í kringum okkur, lítum vestur og norður, þá er þar Grænland. Það er mjög auðugt land af auðlindum, með mikla landhelgi og mikið landsvæði. Þeir eru ekki í Evrópusambandinu. Fyrir austan okkur og sunnan eru Færeyjar. Þeir eru ekki í Evrópusambandinu. Lengra í vestur og norður er Noregur. Þeir eru ekki í Evrópusambandinu. Sunnan við það eru Bretlandseyjar. Þeir eru ekki í Evrópusambandinu. Öll þessi lönd í kringum okkur eru meðal auðugustu landa Evrópusambandsins, Evrópu og nágrennis. Þessi lönd sem ég taldi hér upp finna sig ekki innan Evrópusambandsins. Hví skyldum við Íslendingar ganga inn í samband sem allar þjóðir í kringum okkur hafa kosið að vera fyrir utan?