þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég endaði mál mitt áðan á umræðu um óskir fyrrverandi utanríkisráðherra, Gunnars Braga Sveinssonar, varðandi afrit af gögnum er varða samskipti, sérstaklega embættismanna hans, við embættismenn í Brussel frá því að hann var utanríkisráðherra. Ég ætla að fara nákvæmlega inn í þessa gagnabeiðni á eftir en áður en ég fer í það ætla ég að ítreka hér að það er mjög mikilvægt til þess að þessi umræða geti farið almennilega fram, þannig að allir sem hér eru í þessum sal og bæði þing og þjóð séu upplýst um öll gögn málsins, að leynd verði aflétt af þessum gögnum sem nú sitja í einhverju leyniherbergi sem fáir hafa aðgang að og enginn má tala um eða segja frá. Það er mjög brýnt og það er skylda okkar og það er skylda þingmanna að reyna að særa þessi gögn fram þannig að þjóðin og þeir þingmenn sem ekki hafa aðgang að þeim séu sem best upplýst hvað varðar brall hæstv. utanríkisráðherra á fundum erlendis þar sem hún virðist löngu áður en þetta mál kom á dagskrá Alþingis hafa verið farin að bralla með aðilum í Brussel og jafnvel einhverjum fleirum. Það er skylda okkar sem hér erum að reyna að kalla fram upplýsingar þannig að þing og þjóð geti verið upplýst um hvað það hefur í för með sér að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni og sérstaklega hvað það hefur í för með sér að segja já. Í dag vitum við það ekki vegna þess að meiri hlutinn hefur ekki sett fram samningsmarkmið. Það hafa ekki verið settar fram rauðar línur. Það hefur eiginlega ekki verið settur fram nokkur skapaður hlutur enda er þessi þingsályktunartillaga í skötulíki, einblöðungur sem er lítill efniviður í.
Ég ætla aðeins að fara í gagnabeiðni fyrrverandi utanríkisráðherra, Gunnars Braga Sveinssonar, vegna þess að það skiptir máli að þjóðin viti hvers lags gögnum utanríkisráðuneytið er að hafna að birta viðkomandi fyrrverandi ráðherra sem þó hlýtur að bera ráðherraábyrgð á sínum eigin embættisfærslum. Með leyfi forseta vitna ég hér til viðbótarumsagnar sem dagsett er 12. maí á þessu ári þar sem fyrrverandi utanríkisráðherra hafði verið boðaður til fundar utanríkismálanefndar til þess að fara yfir umsögnina. Þar var þingmaður, og fyrrverandi utanríkisráðherra reyndar, Guðlaugur Þór Þórðarson, sem óskaði eftir upplýsingum um hvaða gögn utanríkisráðuneytið hefði neitað að afhenda fyrrverandi utanríkisráðherra. Í þessu erindi, viðbótarerindi fyrrverandi utanríkisráðherra, Gunnars Braga Sveinssonar, er upplýst hvaða gögnum hann óskaði eftir. Ég vitna til bréfs fyrrverandi utanríkisráðherra, með leyfi forseta:
„Fyrst var óskað eftir gögnum 21. janúar 2025. Var því svarað að afhenda aðeins hluta þeirra gagna sem óskað var eftir. Leitaði ég því til lögmanns um aðstoð við að óska á ný eftir umbeðnum gögnum og var ráðuneytinu sent nýtt erindi dagsett 18. mars sl.“ — á síðasta ári, 2025 — „þar sem m.a. skýrari tímarammi er settur á það tímabil sem óskin nær til ásamt því að vísa til víðtækrar ábyrgðar ráðherra á ráðuneyti sínu.“
Frú forseti. Ég mun ekki geta farið nákvæmlega í það hver óskin var vegna þess að nú er tíminn að renna út sem ég hef í þessari ræðu þannig að í næstu ræðu minni mun ég bara vinda mér beint í það hvernig ósk fyrrverandi utanríkisráðherra hljómaði og hver svörin voru. Ég óska eftir því að vera sett aftur á mælendaskrá.