þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég er að kynna nefndarálit 2. minni hluta utanríkismálanefndar. Þegar ég þurfti frá að hverfa sökum tímaskorts var ég kominn á kafla sem ber yfirskriftina Skilyrði umsóknar og ég var byrjaður að lýsa því að því hefur verið haldið fram af talsmönnum málsins nú, bæði hæstv. ráðherrum og hv. þingmönnum meiri hlutans, að þetta mál byggi í raun ekki aðeins á um umsókninni sem var lögð fram árið 2010 heldur einnig þingsályktunartillögunni og þingsályktuninni sem sú umsókn byggði á og var afgreidd hér á Alþingi árið 2009. Því er haldið fram að af því að hún hafi ekki verið afturkölluð þá sé hún enn í gildi. Þetta er auðvitað ekki rétt, herra forseti. Eitt þing getur ekki skuldbundið öll þing til framtíðar, en þetta var málflutningurinn. Þetta byggðist á þingsályktunartillögunni og þingsályktuninni frá 2009. Þar var að finna skilyrði og ekki bara í þingsályktuninni og umfjöllun nefndarinnar um hana heldur var einnig gengið frá því á ríkisstjórnarfundum að aðeins yrði farið í umsókn með skilyrðum. Þetta var nauðsynlegt til að tryggja tillögunni meiri hluta.
Þessu lýstu fyrrverandi ráðherrar á fundum utanríkismálanefndar, þar með taldir Ögmundur Jónasson og Jón Bjarnason. Þeir bentu hins vegar á, ekki hvað síst Jón Bjarnason, að þessi tillaga, þingsályktunartillaga, hefði verið svikin því á daginn hefði komið að íslensk stjórnvöld, Össur Skarphéðinsson, þáverandi utanríkisráðherra, og Jóhanna Sigurðardóttir, þáverandi forsætisráðherra, hefðu sent umsókn um aðild að Evrópusambandinu til Brussel algerlega skilyrðislaust. Þetta var skýr afdráttarlaus umsókn: Ísland sækist eftir að fá aðild að Evrópusambandinu. Þetta kom í ljós í þeim viðræðum sem í hönd fóru, aðlögunarviðræðunum á árunum 2010, 2011, 2012. Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, sagði frá því að í þeirri vinnu sem heyrði undir ráðuneyti hans hefði hann ítrekað nefnt skilyrðin og að ekki væri heimild til að ganga lengra hvað þau varðaði. Þetta snerist einkum um sjávarútveg og landbúnað. En þá höfðu svör fulltrúa Evrópusambandsins í viðræðunum verið: Það kemur okkur bara ekkert við hvaða skilyrði þú dregur hér fram. Það var sótt um aðild að Evrópusambandinu skilyrðislaust. Og þannig virkar það. Menn sækja ekki um aðild að Evrópusambandinu með skilyrðum. Svoleiðis að þáverandi ríkisstjórn eða forystumenn hennar höfðu ekkert gert með þessi skilyrði. Engu að síður má líta svo á að þau hafi átt að binda samningamenn Íslands, eða hvað við kjósum að kalla þá, í viðræðunum. Það má segja að það hafi komið á daginn þegar ekki reyndist mögulegt að opna kafla um sjávarútvegsmál og landbúnaðarmál og reyndar fleiri kafla vegna þess að Evrópusambandið leit svo á að Íslendingar væru ekki tilbúnir að gefa eftir það sem þyrfti í þeim efnum. Afleiðingin varð sú að viðræðurnar sigldu í strand. Þeim var hætt. Það er kannski ástæða til að minna á það að viðræðunum var hætt af vinstri stjórninni á sínum tíma, þeirri sömu stjórn og sótti um aðild. Hún hætti viðræðunum í kringum áramótin 2012/2013. Þeim var svo slitið árið 2015 á afgerandi hátt þannig að Ísland var ekki lengur umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu.
Ástæðan fyrir því að það er mikilvægt (Forseti hringir.) að rekja þetta er að tillögunni nú fylgja engar rauðar línur eins og það er kallað, herra forseti. (Forseti hringir.) Ég verð þá bara að halda áfram þar sem frá var horfið í næstu ræðu og æski þess að verða settur aftur á mælendaskrá.