157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:06]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Virðulegur forseti. Við höfum hér ítrekað beðið um að fá upplýsingar um þau gögn sem hvílir leynd yfir og aðeins þingmenn sem eru í utanríkismálanefnd mega sjá. Forseti hefur ítrekað verið beðinn um þessi gögn til þess að þjóðin fái að vita hvað utanríkisráðherra er búinn að vera að bauka í Brussel en við heyrum engar fréttir af þessu og ég held að það liggi fyrir að við getum ekki samþykkt málið hér fyrr en við vitum hvernig fer með þessi gögn, alla vega þannig að þingmenn fái að sjá þau og geti metið hvað hafi eiginlega átt sér stað, hvaða samskipti hafi verið um þetta mál, því það lítur út fyrir að ríkisstjórnin sé komin miklu lengra en hún viðurkennir. Ekkert ríki innan Evrópusambandsins hefur fengið varanlega undanþágu frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni. Ekkert ríki innan Evrópusambandsins hefur á síðustu áratugum fengið varanlega undanþágu. Við erum samt að fara í þessa vegferð vitandi þetta og við höfum þessar upplýsingar. Okkur er sagt að ef fólk segir já í ágúst þá séum við að fara að kíkja í pakka. Hvaða ástæðu hefur ríkisstjórnin til að halda því fram að við fáum að kíkja í pakka þegar ekkert land innan Evrópusambandsins hefur fengið varanlegar undanþágur síðustu ár og áratugi? Þetta er einungis spurning um tíma sem aðlögunin tekur.

Hér höfum við fengið lítinn tíma til að ræða þetta risastóra mál, einungis nokkra daga, almennir þingmenn, ég held að við séum á þriðja eða fjórða degi. Asinn er slíkur, til þess að þjóðin fái ekki upplýsingar, að þingmenn meiri hlutans sem voru á mælendaskrá og við vonuðumst til að geta átt orðastað við til að fá svör við einhverjum spurningum, tóku sig af mælendaskrá í gær. Þingmenn meiri hlutans sem voru þó á mælendaskrá gátu ekki farið í eina ræðu í málinu, ekki eina ræðu. Það var línan. Það virðist hafa verið línan að það mætti ekki tala í þessu stærsta máli ríkisstjórnarinnar, einu stærsta máli sem þjóðin hefur staðið frammi fyrir, og það á að hamla allri umræðu. Það er ekki ásættanlegt að þingleg meðferð sé með þessum hætti af því að ríkisstjórnin sjálf er búin að setja sig í einhverja tímapressu í lok ágúst. Það skiptir engu máli hvort þessi atkvæðagreiðsla sé í lok ágúst eða byrjun september en það skiptir máli að þjóðin fái lykilupplýsingar í málinu. Það er það sem skiptir máli.

Lykilupplýsingar eru til að mynda þær að Evrópusambandið er eins og það er og við þurfum aðeins að ræða hvað Evrópusambandið er því að við erum að fara að kjósa í ágúst um það hvort við viljum ganga inn í Evrópusambandið. Þessi atkvæðagreiðsla í ágúst eða byrjun september eða hvenær sem hún verður er byggð á þingsályktun frá 2009 þar sem stendur alveg skýrt að það standi til að sækja um aðild að Evrópusambandinu og það er það sem við erum að halda áfram með. En hér er alltaf verið að teikna upp einhverja þá mynd að þetta sé eitthvað annað. Við þurfum að fá svör við því hvað er að fara að gerast hérna ef þjóðin segir já.

Það var ekki vilji til þess að breyta spurningunni hvort við vildum fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hún varð að vera hvort við vildum fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný til að tengja það við fyrri þingsályktun þar sem þetta er skýrt: Viltu ganga í Evrópusambandið? Það er auðvitað það sem við erum að fara að kjósa um. Það getur vel verið að einhver vilji ganga inn í Evrópusambandið og þá segja þeir já. En að halda því fram að Evrópusambandið sé að bjóða upp á samningaviðræður þar sem lönd geta bara valið það besta og sleppt hinu versta er auðvitað ekki sannleikanum samkvæmt. Það eru bara hreinar blekkingar því að samningaviðræður snúa bara að því hve langan tíma við tökum okkur í að innleiða og aðlaga okkur að Evrópusambandinu. Þessu erum við aldeilis að fá að finna fyrir núna þegar kemur að loftslagssköttunum sem okkur var sagt að við hefðum fengið undanþágur frá. En hvað var það? Það var í raun og veru bara tveggja ára undanþága og núna koma þessir skattar af fullum þunga (Forseti hringir.) á flugfélögin, á skipaflutninga til Íslands og heimili landsins greiða fyrir.