157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:11]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Við höldum áfram umræðu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um inngöngu eða um áframhald viðræðna, eins og það er orðað, við Evrópusambandið. Það er ekki úr vegi fyrst maður hefur tækifæri, og maður mun vonandi hafa aðeins fleiri tækifæri í viðbót, að fara yfir helstu og veigamestu sjónarmiðin í þessu máli um það hvort Íslendingar hafi hag af því að ganga inn í Evrópusambandið, sem er auðvitað lykilspurning hér. Í erlendum miðlum sér maður það alltaf jafn vel að eiginlega hvar sem fjallað er um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu á Íslandi ríkir sá skilningur flestra erlendra aðila, þótt sums staðar sé hitt tekið fram, að hér sé verið að kjósa um inngöngu í Evrópusambandið, hvort menn fari í þann leiðangur. Ég vil vekja máls á því hér við þetta tækifæri að með því að segja já í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu er þjóðin að fara inn í ferli sem er að miklu leyti ómótað og felst í raun og veru í að afhenda ríkisstjórninni mjög ríkt og sveigjanlegt umboð til að semja um samning að Evrópusambandinu. Þeir sem fara fyrir því verkefni innan ríkisstjórnarinnar eru t.d. hæstv. utanríkisráðherra, formaður Viðreisnar.

Ég vil vekja máls á einum anga málsins við þetta tækifæri sem er að mínu mati örlagaríkasta málefni Íslendinga á þessum síðustu og verstu tímum, sem er umgjörð innflytjendamála á Íslandi. Ef þú horfir á undanfarna áratugi á Íslandi og veltir því upp hvar róttækustu grundvallarbreytingarnar hafa orðið á umgjörð útlendingamála og af hvaða sökum þær hafa orðið þá liggur leiðin iðulega, eftir því sem þú rekur þig eftir þessum þræði, til hvers konar alþjóðasamstarfs eða alþjóðlegra skuldbindinga. Einn angi málsins er auðvitað EES-samningurinn um frjálsa för 350 milljón íbúa Evrópusambandsins og EES-samningsins. Síðan eru það mannréttindasamningar, dómstóll, Mannréttindadómstóll Evrópu og sjónarmið þaðan á sviði hælismála, flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna og fleiri grunnstólpar sem umgjörð útlendingamála hefur byggst á. Þegar við erum að ræða stórar grundvallarbreytingar í samstarfi Íslands við útlönd er auðvitað mjög mikilvægt að við horfum strax til þess og hugsum málið til enda, hvar þetta geti þrengt að sjálfsákvörðunarrétti Íslendinga á sviði útlendingamála.

Ef við horfum á EES-samninginn núna þá er í raun og veru þessi frjálsa för grundvöllur samstarfsins en síðan eru ýmsir þættir sem við Íslendingar getum þó á grundvelli innlends löggjafarþings hnikað til og reynt þannig að hafa áhrif á flæði fólks til og frá landinu, í hvaða erindum er æskilegast að hvetja menn til að koma hingað og á hvaða forsendum við reynum, svo að segja að bægja þeim frá eftir atvikum. Þetta er eitthvað sem við getum gert með fínstillingum í lagaumgjörðinni. Við getum nefnt nýlegt dæmi þar sem við erum að stytta tímann frá komu fólks hingað til lands og þar til það fær fullan aðgang að sjúkratryggingum úr sex mánuðum í þrjá mánuði. Augljóst er af þessu að þarna er skapaður aukinn hvati til þess að menn komi hingað, þetta á sem sagt við um EES-borgara, og fái þá þegar fullan aðgang að sjúkratryggingakerfinu. En það er ekkert í skuldbindingum okkar við EES sem kveður á um það nákvæmlega hvernig þetta á að vera. Svona höfum við enn um sinn þessa möguleika til að fínstilla þessi atriði en þegar inn í Evrópusambandið væri komið mætti hafa verulegar efasemdir um að þetta svigrúm héldist með sama hætti. Þess vegna vill maður hvetja til þess í þessari umræðu að þeir sem láta sig umgjörð útlendingamála varða á Íslandi og framtíðarþróun þeirra mála kynni sér vel hvers konar framsal á yfirráðum á því sviði felst í því að ganga inn í Evrópusambandið.

Þetta er aðeins einn angi málsins. Nefna má fjölmarga fleiri anga málsins og mér virðist sem ég fái ekki tóm til þess að þessu sinni, í þessari ræðu, og bið af þeim sökum um að vera skráður aftur á mælendaskrá.