þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég lauk síðasta erindi mínu með því að fjalla stuttlega um þá staðreynd að Ísland, ef af þessari vegferð verður, mun ekki geta gert tvíhliða samninga og það mun þurfa að segja upp sínum fríverslunarsamningum enda mun Evrópusambandið taka að sér að gera það fyrir hönd Íslands. En það sem mig langaði að taka næst fyrir og gera að umtalsefni er það sem loksins fékkst fyrir ekki svo mörgum dögum síðan upp á yfirborðið í umræðunni og hv. þingmenn meiri hlutans gengust orðið við, sem er sú lykilstaðreynd að Ísland yrði nettógreiðandi inn í Evrópusambandið ef við færum þar inn. Þetta kannski hljómar ekkert svo illa ef fólk setur sig ekki þeim mun meira inn í þetta. En mig langar að vitna til skrifa af vefnum stjórnmál.is þar sem segir, með leyfi forseta:
„Frá því að Króatía gekk í Evrópusambandið árið 2013 hefur landið fengið um 26 milljarða evra frá sambandinu en á sama tíma aðeins greitt um sex milljarða evra í sjóði þess. Króatía hefur þannig fengið um 20 milljarða evra meira frá Evrópusambandinu en landið hefur greitt til þess eða sem nemur um 2.880 milljörðum íslenzkra króna. Þessar greiðslur hafa komið frá þeim ríkjum sambandsins sem greiða meira til þess en skilar sér til baka og eru í miklum minnihluta. Kæmi til þess að Ísland gengi í Evrópusambandið yrðum við Íslendingar í hópi þeirra þjóða sem greiða reikninginn.“
Herra forseti. Þetta er það sem við erum að minna á og reyna að draga upp á yfirborðið. Það eru staðreyndir málsins, þ.e. hvaða bagga við erum að leggja á herðar íslensku þjóðarinnar verði þessi vegferð gengin til fulls. Það er rétt að hafa í huga líka að á sama tíma er Króatía, sem er í Evrópusambandinu eins og áður segir, að mælast með verðbólgu upp á 5,4% í apríl. Á sama tíma mældist verðbólga á Íslandi 5,2% þannig að ekki var því til að dreifa að aðild að Evrópusambandinu tryggði Króatíu lægri verðbólgu. Þetta er það sem það þýðir að vera nettógreiðandi inn í Evrópusambandið. Það eru tiltölulega fáar þjóðir sem eru það. Og núna, eins og ég vék að í ræðu í gær, eru horfur til þess að skilyrðum fyrir inngöngu verði jafnvel breytt aðeins og ný aðildarríki muni hugsanlega ekki hafa svokallað neitunarvald. Þar eru væntanlega á biðlistanum ríki sem flest hver, ef ekki öll, yrðu einmitt Króatíumegin í þessu dæmi sem ég var að taka, þ.e. yrðu ekki nettógreiðendur og myndu þar af leiðandi reyna enn þá meira á þau lönd sem væru nettógreiðendur eins og Ísland yrði. Hv. þingmenn meiri hlutans hafa eftir talsvert langa umræðu loksins fengist til að gangast við því á undanförnum dögum. Það eitt og sér er umtalsverður árangur í umræðunni, að fólk átti sig á því að á bak við alla þessa umræðu um svo og svo mikla styrki frá Evrópusambandinu til handa Íslandi, gengi það inn í sambandið, einhvers konar byggðastyrkir, jafnvel vegabætur, einhver aðlögun gagnvart landbúnaði — þá er það engu að síður þannig og staðfestist með þessu dæmi að nettógreiðandi þjóð væri að greiða meira til Evrópusambandsins fyrir aðildina en sem næmi styrkjunum sem kæmu til baka. Þetta er það sem nettógreiðandi þýðir. Þetta hygg ég að verði að vera eitt af því sem fólk hefur hvað mest í huga þegar það veltir fyrir sér í hvaða stöðu við sem þjóð erum, þegar við sendum út sendinefnd til að fara í einhverjar aðildarviðræður við Evrópusambandið, því það er jú það sem þetta er. Þetta eru aðildarviðræður og aðlögunin hefst samhliða viðræðunum.
Ég mun, herra forseti, gera örlítið betur grein fyrir þessu í næstu ræðu er varðar þetta dæmi sem ég var að taka með Króatíu því þetta eru engar smátölur sem leggjast á herðar nettógreiðandi þjóða í þessu ríkjasambandi. Ég óska eftir því, herra forseti, að verða settur aftur á mælendaskrá.