þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni kærlega fyrir hans ræðu. Hann gerir spurninguna hérna að umtalsefni og segir að ríkisstjórnin hafi verið gerð afturreka með upprunalegu spurninguna, sem ég tel að sé nú aðeins orðum aukið. En það er hins vegar rétt að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd gerir tillögu að annarri spurningu: Á að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið? Það er spurning sem stjórnsýslufræðingurinn Arnar Þór Stefánsson hefur lagt til, bæði við nefndina og síðan líka opinberlega, og það er spurning sem landskjörstjórn hefur sagt að sé góð, hlutlaus og skýr. Ég spyr einfaldlega hv. þingmann hvort hann styðji þessa útgáfu af spurningunni sem hefur verið lögð til af stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“