þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvar hans. Ég verð í upphafi, þegar ég svara spurningu hv. þingmanns, að túlka þetta á eðlilegan hátt. Auðvitað var utanríkismálanefnd gerð afturreka með upphaflegu spurninguna. Auðvitað var sá sem lagði þetta fram, utanríkisráðherra, gerður afturreka með þetta, auðvitað, bæði af landskjörstjórn og Feneyjanefndinni. Spurningunni var breytt og hún er, hv. þingmaður, mikið skárri. Síðari spurningin sem felst í breytingartillögunni er mikið skárri en upphaflega spurningin, mikið betri. Þannig að ég er ósammála hv. þingmanni um þetta orðalag. afturreka, ég held mig við það að kalla þetta að þið hafið, stjórnin og hæstv. utanríkisráðherra, verið gerð afturreka með upphaflegu spurninguna. Ég stend við það. Það er búið að breyta henni og það var ekki sársaukalaust, hv. þingmaður. Það var hávaði í kringum þetta. Menn voru ekki tilbúnir til að fallast á það strax en gerðu það fyrir rest, enda er upphaflega spurningin gildishlaðin, miklu gildishlaðnari en það sem nefndin leggur til núna.
Upphaflega spurningin var: „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“ Menn eru og voru auðvitað ósammála því, mjög margir, að við værum að halda áfram einhverjum viðræðum sem væri ekki slitið. Menn voru ósammála um það. Það væri rétt að bera undir þjóðina spurningu sem þið hafið breytt og núna er spurt hvort Ísland eigi að hefja á ný — það er miklu eðlilegri spurning, hv. þingmaður, miklu eðlilegri.