þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður heldur því fram að það hafi ekki verið sársaukalaust að breyta þessari spurningu. Ég segi kannski fyrir mína hönd og þeirra sem sátu í utanríkismálanefnd að ég fann nú ekki fyrir mikilli þjáningu þegar þessi breytingartillaga var lögð fram. Það var vissulega þannig að við leituðum eftir áliti Feneyjanefndar og síðan fór fram lögbundið mat eða álit landskjörstjórnar. Mér fannst álit Feneyjanefndar ekki kannski gefa tilefni til að segja að stjórnin hafi verið gerð afturreka með upphaflegu spurninguna. Það var hins vegar bent á nauðsyn og mikilvægi upplýsingagjafar og að hún væri nauðsynleg, alveg óháð því í rauninni hvernig spurningin væri orðuð. Það væri fyrirætlun stjórnvalda sem gegndi lykilhlutverki.
Ég spurði hv. þingmann að því hvort hann styddi þessa spurningu vegna þess að fulltrúi hans flokks í utanríkismálanefnd og fulltrúi hans flokks í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd lögðu til aðra útgáfu af spurningunni, sem var: Á Ísland að ganga til viðræðna við Evrópusambandið um aðild? Þetta er sagt eftir minni. Ég er bara að velta þessu svolítið mikið fyrir mér vegna þess að það var kallaður til stjórnsýslufræðingur, Arnar Þór Stefánsson, mjög virtur fræðimaður á sínu sviði, og hann lagði til þessa spurningu og ég held að það hafi nú meira að segja verið þannig að fulltrúi Miðflokksins í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd var einn af þeim sem mæltust til þess að hann væri kallaður til. Síðan þegar sá aðili kemur með breytta spurningu og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og utanríkismálanefnd fallast á þá breyttu spurningu, þá skyndilega er það ekki nógu gott. Þá þarf að breyta spurningunni enn frekar. Ég spyr því: Eru þetta ekki bara ákveðnir biðleikir hjá Miðflokknum, að óska fyrst eftir að spurningu sé breytt og síðan þegar komið er til móts við þær óskir og spurningu er sannarlega breytt, þá er það ekki nógu gott heldur? Af hverju þessir biðleikir?