157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:32]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Þetta eru skemmtilegar pælingar hjá hv. þm. Pawel Bartoszek. Ég þakka honum kærlega fyrir að koma hér í andsvör við mig sem er sannarlega verðmætt fyrir umræðuna. Fyrsta spurningin var náttúrlega ómöguleg, upphaflega spurningin var ómöguleg. Menn urðu auðvitað varir við það að margir risu upp á afturlappirnar, m.a. þessir hlutlausu aðilar eins og Feneyjanefndin og landskjörstjórn, og bentu á að hún væri meingölluð, sem hún var. Af hverju gengu menn þá ekki alla leið? Af hverju er orðið „ný“ sett inn í spurninguna í dag? Af hverju er það gert? „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Hvaða þrjóska er það? Af hverju er ekki hægt að ganga alla leið eins og minni hlutinn vill og leggur til: Vilt þú að gengið verði til aðildarviðræðna við Evrópusambandið? Hvaða þrjóska er það í meiri hlutanum (Gripið fram í.) að skjóta inn þessu orði „ný“ eða „á ný“? Hvaða þrjóska er það? spyr ég á móti. Ég veit að hv. þingmaður getur ekki komið aftur upp í andsvör en hann á þess kost á að koma í ræðu og skýra þetta enn þá betur út.

Auðvitað er langeðlilegast að fara þá leið sem minni hlutinn leggur til, að spyrja þjóðina einfaldlega: Vilt þú að gengið verði til aðildarviðræðna við Evrópusambandið? Langeðlilegast. Ég sný þessu bara á hv. þingmann: Af hverju eruð þið það þrjósk að þið þurfið að skjóta inn þessu „á ný“? Af hverju? Hver er þá þrjóskur? Hver er þá með þvermóðsku í málinu? Ef hv. þingmaður vill nefna það að við höfum alltaf viljað ganga lengra og lengra og verið að nota einhverja tafaleiki þá myndi ég segja að þið einmitt, hv. meiri hluti, hafið sýnt þrjósku í málinu.