þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég hef verið að fara yfir nefndarálit 2. minni hluta utanríkismálanefndar og orðið nokkuð ágengt. En í ljósi umræðunnar áðan um spurninguna vil ég geta þess að það styttist í að ég hefji umfjöllun um þann kafla álitsins sem fjallar einmitt um spurninguna. Vonandi mætir hv. þm. Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar, til umræðunnar þá og er ástæða til að hrósa honum fyrir að koma hér upp í andsvar við hv. þm. Karl Gauta Hjaltason til að liðka fyrir umræðunni.
En áður en ég held áfram, herra forseti, verð ég þó að nota tækifærið til að minna hæstv. forseta á að ég er hér ítrekað, og við mörg, búinn að biðja hæstv. forseta að hlutast til um það að leynigögnin verði frelsuð því það er algjört grundvallaratriði fyrir framgang þessarar umræðu að hv. alþingismenn og almenningur á Íslandi geti verið meðvitaðir um hvað þjóðaratkvæðagreiðslan snýst í raun. Um hvað er búið að ræða nú þegar, hver yrði upphafspunkturinn ef menn segðu já í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þegar frá var horfið var ég að ræða skilyrðin sem sett voru fyrir umsókninni síðast og vantar núna. Ég rakti það reyndar líka að síðast hefðu skilyrðin ekki verið virt. Því lýstu m.a. ráðherrar í þeirri stjórn sem lagði fram umsögnina á sínum tíma og við getum þá rétt velt fyrir okkur að ef ekki einu sinni skilyrðin sem voru samþykkt í ríkisstjórn og í utanríkismálanefnd og voru þannig hluti af þingsályktunartillögunni voru virt, hvaða hald er þá í einhverjum óljósum vonum meiri hlutans nú um að hugað verði að hinu eða þessu eða tekið tillit til? Það er ekkert hald í því, herra forseti, enda tekur Evrópusambandið ekki við umsóknum öðruvísi en að það sé einfaldlega sóst eftir aðild og umsóknarríkið reiðubúið að gera það sem Evrópusambandið krefst til þess að öðlast aðildina. En þetta sem varðar skilyrðin tengist auðvitað grundvallarspurningunni sem við leitumst enn við að fá botn í og tengist fyrrnefndum leynigögnum og það snýr að því hvað gerist ef fólk segir já í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Eins og staðan er á umræðunni núna þá er ekki hægt að túlka það öðruvísi en svo að já þýði að kjósandinn veiti hæstv. utanríkisráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, fullt umboð, óútfylltan tékka á fullveldi Íslands í viðræðum við Evrópusambandið. Svo þekkjum við það auðvitað hvernig hæstv. ráðherra mun útskýra það að stórkostlegur árangur hafi náðst, sama hver niðurstaðan verður. Ég held að það detti engum hv. þingmanni eða jafnvel nokkrum einasta borgara í hug að hæstv. utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, myndi einhvern tímann afþakka samning við Evrópusambandið um aðild en hún gæti tekið upp á því að endurskilgreina hlutina, sérstaklega hvað varðar svokallaðar undanþágur. En það hef ég að nokkru leyti rakið áður og sé til hvort tími gefst til að fara betur yfir það.
Ég gat um það þegar ég fór yfir þann kafla í umsögninni að ég ætlaði að sleppa nokkrum blaðsíðum af allítarlegri skýringu á því hvað eru raunverulegar undanþágur hjá Evrópusambandinu og hvað ekki. Ég hef látið það bíða til þess að komast hraðar yfir nefndarálitið og geta síðan snúið mér að öðrum þáttum sem ekki vannst tími til að skrifa inn í þetta nefndarálit. En í álitinu er kafli sem ber yfirskriftina: Hvað þýða valkostirnir? Og þetta lýtur að spurningunni sem ég nefndi hérna áðan. Hvað gerist miðað við annaðhvort nei eða já í þjóðaratkvæðagreiðslu? Hér er leitast við að skýra það. Reyndar hefur það reynst þrautaganga því að þeir sem leggja tillöguna fram hafa ekki verið viljugir til að útlista þetta og jafnvel haldið aftur upplýsingum sem gætu skýrt það. (Forseti hringir.) — Það er meira hvað tíminn líður hratt, herra forseti, ég verð að biðja um að vera settur aftur á mælendaskrá.