157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:41]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Forseti. Það er mikilvægt að átta sig á því hvað það þýðir að ganga inn í Evrópusambandið vegna þess að við erum að fara að kjósa um það í ágúst hvort þjóðin vilji ganga inn í Evrópusambandið því auðvitað er enginn að fara að kjósa já í ágúst eða september ef hann vill ekki ganga inn í Evrópusambandið. Það var eins og Orri Hauksson sagði í Þjóðmálum: Myndi einhver sækja um aðild að skátunum sem vill ekki fara í útilegu og vill ekki syngja skátasöngva? Af hverju ætti sá aðili að sækja um að ganga í skátana? Þannig að við þurfum að upplýsa um hvað já þýðir og hvað nei þýðir.

Mér þykir áhugaverð grein sem birtist í Financial Times eftir konu að nafni Valentina Romei. Megininntakið í þeirri grein er að Evrópusambandið er að dragast mjög hratt aftur úr Bandaríkjunum og Kína þegar kemur að nýsköpun, rannsóknum og tæknilegri samkeppnishæfni og vandamálið virðist vera að versna. Og hverjir eru helstu punktarnir? Helstu punktarnir eru þeir að einkafjárfesting í rannsóknum og þróun í Evrópu er mjög veik miðað við Bandaríkin og Kína. Raunar er þetta þannig að Evrópusambandið er að dragast aftur úr öllum heimsálfum, meira að segja úr þriðja heims ríkjum á margan hátt. Árið 2024 jukust rannsóknir og þróun aðeins um 2,9% í Evrópusambandinu á meðan það jókst um 7,8% í Bandaríkjunum. Hlutur Evrópusambandsins í alþjóðlegri nýsköpun er að minnka. Evrópusambandið fór úr 21,4% af alþjóðlegum fyrirtækjum í rannsóknum og þróun árið 2014 niður í 16,2% árið 2024. Bandarísk fyrirtæki fjárfesta nú þrisvar sinnum meira í rannsóknum og þróun en fyrirtæki innan Evrópusambandsins. Þetta er staðan og þetta er stór ástæða fyrir því að Evrópusambandið dregst hratt aftur úr. Evrópusambandið er á hraðri leið inn í framtíðina og viljum við festa ungu kynslóðina þar inni? Eigum við ekki að leyfa ungu kynslóðinni að taka ákvörðun eftir nokkur ár? Það væri miklu betra, til að mynda að taka ákvörðun þegar við vitum hvert gervigreindarþróunin mun fara með okkur. Og á meðan þessi staða er uppi viljum við þá ekki geta samið við hvaða land sem er? Ef við göngum inn í Evrópusambandið þá munu samningar okkar, frjáls verslun við Kína, við öll önnur lönd en Evrópusambandið sjálfkrafa detta niður. Það verður því ekki á okkar höndum að semja um fríverslunarsamninga ef við göngum inn. Þetta er bara eitthvað sem fólk verður að átta sig á. Ég veit að fullt af fólki vill ganga í Evrópusambandið og það er bara gild skoðun. Ég tel að hagsmunum okkar sé betur borgið fyrir utan Evrópusambandið en atkvæðagreiðslan í ágúst snýst auðvitað um það hvort við viljum ganga inn í Evrópusambandið eða ekki.

Þessi grein sem ég hef verið að vitna í byggist mikið á viðvörunarorðum Mario Draghi en við höfum svolítið vitnað í skýrslu sem hann birti. Mario Draghi, eins og er þekkt, gagnrýnir kerfið innan frá. Meira að segja Evrópusambandið sjálft er búið að átta sig á því að þeir eru búnir að reglugerðarvæða sig út úr samkeppninni. Þeir eru að reyna að benda á það en risaeðlan hreyfist hægt. Það er búið að benda á þetta núna í nokkur ár og hvað hefur gerst? Reglugerðarvæðingin hefur aukist, hún hefur ekki minnkað. Ég held því að við eigum að vera ánægð. Við erum með góðan samning, EES-samninginn, og fáum sennilega allt það besta úr honum en þurfum ekki að taka á móti því versta sem Evrópusambandið býður upp á.

Ég verð að minna á hér að lokum að ekkert ríki Evrópusambandsins hefur fengið varanlega undanþágu frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni og ekkert ríki Evrópusambandsins hefur fengið varanlegar undanþágur síðustu áratugi. Engu að síður heldur þessi ríkisstjórn því fram að það sé hægt að semja um einhvern pakka þar sem þú getur valið það besta og ekki hið versta. Ekkert ríki hefur fengið varanlegar undanþágur síðustu ár. — Ég óska eftir að vera sett aftur á mælendaskrá.